Skilvirk og hagkvæm sjálfsafgreiðsla
Segðu bless við óþarfa handavinnu
Kerfið er einfalt, skýrt og myndrænt. Handskráð uppgjör heyra sögunni til, því uppgjörsferlið skilar sér auðveldlega inn í launa- og bókhaldskerfið þitt.
Segðu skilið við allt umstangið og tímann sem fylgir vöruúttektum á pappír, miðum eða í Excel.
Auðveld áætlanagerð
Matráður gefur þér skýra sýn yfir söguleg gögn og úttektir starfsfólks. Með þessu verður auðveldara að áætla þörf aðfanga og innkaup í framtíðinni.
Eru fleiri í mat á fimmtudögum en mánudögum?
Með Matráði er ekkert mál að fletta upp hversu margir mæta í mat eftir dögum.
Staðan í rauntíma
Skoða má úttektir í rauntíma og þannig grípa inn í og gera viðeigandi ráðstafanir ef óvænta gesti ber að garði.
Auktu virðið með tengingum við mannauðskerfi
Tengdu Matráð við mannauðskerfið til að samnýta skráðar upplýsingar. Þannig má t.d. sjálfkrafa virkja starfsmann í Matráði þegar hann hefur störf.
Lagaðu kerfið að þínum þörfum
Það er einfalt að stilla Matráð. Til dæmis má laga verð að fjölda úttekta, þannig að fyrsta úttekt einstakrar vöru sé á öðru verði. Bæta má við möguleika á að skrá úttektir á deildir frekar en starfsfólk og auðvelt er að halda utan um gesti og verktaka.
Lausnin hentar öllum stærðum og gerðum fyrirtækja og stofnana, óháð starfsmannafjölda. Hægt er að setja Matráð upp og nota án nokkurra tenginga við önnur kerfi.
Innifalið í Matráði
- Ótakmarkaður vörufjöldi
- Tryggt aðgengi og uppitími
- Myndræn framsetning á vöruframboði
- Yfirsýn fyrir eldhús
Ath. öll verð eru án VSK
Mánaðargjald
21.295 kr.
38.330 kr.
Viltu ræða aðrar leiðir?
Sum rekstrarform kalla á sérsniðin tilboð.
- Fleiri en 400 starfsmenn
- Fleiri en eitt mötuneyti
- Fleiri en eitt fyrirtæki
- Tenging við önnur kerfi