Cata
Einfaldari og hraðari afgreiðsla pantana


Basic
Einföld sala
Mánaðarverð fyrir hvern notanda

Standard
Betri sölur og pantanir
Mánaðarverð fyrir hvern notanda

Premium
Framúrskarandi þjónusta
Mánaðarverð fyrir hvern notanda

Burt með bæklinga og slitnar möppur
Lausnin er einföld, myndræn og skýr. Það er óþarfi að flækjast um með möppur eða vöruskrár á pappír sem oft sýna gamalt úrval eða vörur sem ekki eru lengur í boði. Cata er allt í senn nákvæmt vöruyfirlit og lausn til að taka niður pantanir á staðnum sem fara samstundis í vinnslu. Lausnin krefst ekki nettengingar og virknin helst þótt sambandið detti út.
Bjóddu þínum viðskiptavinum upp á nákvæmari og hraðvirkari þjónustu.
Vörulistinn ávallt nýuppfærður
Cata er beintengd við gagnasöfnin þín sem gefur þér ávallt rétt yfirlit yfir vöruframboðið. Það getur verið sérlega gott fyrir nýja sölumenn sem eru enn að kynnast vörunum sem eru í boði. Það er auðvelt að setja appið upp og það er enn einfaldara í notkun.


Pantanir í rauntíma
Sölufólk getur tekið niður pantanir á staðnum í gegnum appið. Pantanir berast í rauntíma á réttan stað. Týndar eða gleymdar pantanir heyra sögunni til og viðskiptin eru öll pappírslaus.
Nettengingin ekki vandamál
Nettengingar geta verið til vandræða fyrir þá sem eru mikið á ferðinni. Cata virkar því bæði með og án nettengingar. Kjörið fyrir sölumanninn sem fer greitt á milli staða.