Drýgir þú öryggissyndir?

Sá yðar sem syndlaus er

Við erum flest sek um að drýgja öryggissyndir. Kannast þú við eitthvað af þessum?

ég veit betur en...

...að nota of einföld lykilorð

Einföld lykilorð eru ekki góð lykilorð. Til eru svokallaðir lykilorðasarpar sem búa til sterk handahófskennd lykilorð og vista þau fyrir þig.

Fáðu ráð varðandi lykilorð
ég veit betur en...

...að velja lykilorð eftir árstíðum

Árstíðirnar stjórna veðrinu, en ekki láta þær stjórna lykilorðinu þínu. Vetur22 er ekki gott lykilorð.

ég veit betur en...

...að hafa öll pin númer í símaskránni minni

Símar eru vissulega góðir í að geyma númer. Sum númer eiga samt heima á öruggari stað en í símaskránni.

ég veit betur en...

...að hafa númerið með aðgangskortinu

Býður þú hættunni heim með því að hafa kóðann og aðgangskortið þitt saman? Geymum aðgangsnúmer frekar í öruggum forritum en á post-it miðum á kortinu.

Fáðu ráð varðandi aðgangsnúmer
ég veit betur en...

...að vista öll lykilorð í vafra

Vissir þú að til er hugbúnaður sem stelur lykilorðum sem vistuð eru í vafra? Í stað þess að geyma lykilorðin þín í vafra er töluvert öruggara að nota sérstaka lykilorðasarpa.

Fáðu ráð varðandi lykilorð
ég veit betur...

...að smella á ókunnuga hlekki í tölvupósti

Svikapóstar (e. phising) geta verið mjög sannfærandi og með hverjum deginum verður erfiðara að greina þá frá raunverulegum skilaboðum. Gefðu þér smá stund til að skoða skilaboð áður en þú smellir á hlekki.

Fáðu ráð varðandi skilaboð
ég veit betur en...

...að nota sama lykilorðið allsstaðar

Ef þú notar sama lykilorðið allsstaðar á netinu, þarf ekki nema einn gagnaleka til að allt fari í skrúfuna. Betri hugmynd er að láta svo til gerð forrit útbúa flókin lykilorð.

ég veit betur en...

...að smella á hlekki í SMS-i

Vertu vakandi fyrir skilaboðum frá ókunnugum sendanda. Ekki falla fyrir ákalli um að þú flýtir þér eða smellir á hlekki.

Fáðu ráð varðandi skilaboð