Fyrirtæki meta netöryggi sitt betra en það reynist
Þegar Fjarskiptastofa tekur út netöryggi mikilvægra innviða lækkar einkunnin yfirleitt töluvert frá því sem fyrirtækin gáfu sér sjálf. Þetta segir Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu, í nýjasta þætti hlaðvarpsins Tæknitals. Þar ræðir hún líka innleiðingu NIS2 á Íslandi og nýjar kröfur sem bíða fyrirtækja. Guðmundur Arnar Sigmundsson, netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania, stýrir þættinum að þessu sinni.