Nútíma vinnustaðurinn

Við hjá Advania fórum nýverið í breytingar á okkar vinnurýmum og þeirri aðstöðu sem við bjóðum fólkinu okkar upp á. Þessar breytingar tóku mið af því að fjölbreytt fólk sinnir fjölbreyttum verkefnum og kýs fjölbreytta vinnuaðstöðu með gæða búnaði sem uppfyllir öryggiskröfur og þægindi.

Spjöllum saman

Hvað einkennir nútíma vinnustað?

Sveigjanleiki
Fjölbreytt vinnuaðstaða
Áreiðanlegur og þæginlegur búnaður
Starfsánægja í fyrirrúmi

Búnaður fyrir nútíma vinnuaðstæður

Við val á búnaði fyrir starfsfólk Advania var ákveðið að velja fartölvur sem væru léttar og nettar með góðri rafhlöðuendingu sem að uppfylla öryggiskröfur og staðla fyrirtækisins. Allir okkar skjáir sem við höfum tekið inn eru t.d. með tækni sem dregur úr blágeislum og stuðlar að auknum augnþægindum.

Flest okkar vinnurými eru opin og þar skiptir miklu máli að við séum með góð heyrnatól. Við val á þeim lögðum við áherslu á rafhlöðuendingu, hljóðgæði, og hversu auðvelt það er að taka heyrnatólin með sér til og frá vinnu, ásamt því að þau séu Teams vottuð.

Heyrðu í okkur og fáðu ráðgjöf

Dæmi um vinsælan fyrirtækjabúnað

Frábær yfir eyra heyrnatól frá Jabra með Link 380 USB-C móttakara og hleðslustandi. Ótrúlegur hljómur, tónlist og símtöl. 10 hljóðnemar svo vel heyrist í þér og síar á truflanir með digital hybrid Active Noise Cancellation. Frábær rafhlöðuending.

Fjarfundabúnaður - nú eru öll rými undir

Það eru breyttir tímar - hér áður fyrr sáum við að það var bara fjarfundarbúnaður í fundarherbergjum. En það sem að við erum að sjá í dag, er breytt munstur, nú eru öll rými undir og búnaðurinn sem að við bjóðum upp á styður þessa þróun. Hjá Advania erum við með ekki lengur bara með fjarfundabúnað í fundarherbergjum, heldur einnig samvinnurýmum, sölum og mötuneytinu. Þannig getum við valið það rými sem að hentar hverju sinni og boðið öllumað taka þátt óháð staðsetningu.

Þegar kemur að fjarfundum og fjarfundaherbergjum þá skiptir miklu máli að gæðin séu góð og að þetta sé einfalt í notkun. Það flóknasta í ferlinu ætti að vera í raun að bóka herbergið.

Heyrðu í okkur og fáðu ráðgjöf

Gott samstarf

Vantar þig ráðgjöf varðandi val á búnaði?

Tölum saman

Sérfræðingar okkar eru hafsjór af þekkingu þegar kemur að búnaði fyrir vinnustaði. Sendu okkur fyrirspurn og við svörum um hæl.