Náðu árangri í rekstri með gögnum og gervigreind

Gagnagreining, sjálfvirkni og vinna með gervigreind er ekki lengur bundin við kostnaðarsöm tól. Fáðu aðstoð frá sérfræðingum við að tileinka þér krafta gervigreindarinnar og tryggðu að þinn vinnustaður hellist ekki úr lestinni.

Spjöllum saman 90 daga hraðall
90 daga gervigreindarhraðall

Skýr skref í átt að virðisaukandi nýtingu gervigreindar í rekstri

Með 90 daga gervigreindarhraðli Advania fá fyrirtæki skýra, örugga og markvissa leið til að taka fyrstu, eða næstu skref í notkun gervigreindar.

Hraðallinn er leiddur af Gervigreindarsetri Advania og er hannaður til að hjálpa fyrirtækjum að greina hvar raunverulegt virði gervigreindar liggur í þeirra rekstri, þróa og prófa raunhæfa frumgerð byggða á eigin gögnum og taka upplýsta ákvörðun um næstu skref, með skýrum vegvísi.

Lesa fréttina

90 daga gervigreindarhraðall

Í hraðlinum er staða fyrirtækisins metin og þeim notkunartilvikum forgangsraðað þar sem gervigreind getur skapað mest virði.

Á þeim grunni er hönnuð frumgerð að lausn og valin sú tækni sem hentar best.

Frumgerðin er síðan þróuð og prófuð með notendum til að staðfesta fýsileika og ávinning.

Ef niðurstöður eru jákvæðar er lausnin sett í rekstur með skýr og mælanleg markmið.

Í kjölfarið er mótaður vegvísir fyrir næstu skref í gervigreindarvegferð fyrirtækisins.

Vinnustaður framtíðarinnar reiðir sig á gervigreind

Taktu skrefið

Gervigreindarsetur Advania

Þórður Ingi Guðmundsson hefur tekið að sér stöðu forstöðumanns Gervigreindarseturs Advania.

„Markmið okkar er að vera bakhjarl Íslands í hagnýtingu gervigreindar með því að virkja breiða sérþekkingu Advania á Íslandi, byggja á alþjóðlegri bandvídd Advania samstæðunnar og auðvitað nýta kraftinn í öflugum samstarfsaðilum okkar eins og NVIDIA, Microsoft, Oracle, Dell Technologies og fleirum.“

Gervigreindarsetur Advania hjálpar þér að koma auga á tækifærin og umbreyta þeim í áþreifanlegan árangur með notkun gervigreindar.

Hafðu samband

Viltu hefja þína vegferð?

Advania getur stutt við vinnustaði í innleiðingu gervigreindar. Býður leiðsögn og stuðning, bæði við mótun stefnu til lengri tíma eða til að bæta gervigreind við nýjar sem núverandi lausnir.

Ekki hika við að senda okkur línu og fá ráðgjöf frá mörgum af færustu sérfræðingum landsins í gervigreind og öllu sem henni tengist.

láttu gervigreind vinna með gögnin þín

Advania Eya vinnur með gögnin þín á öruggan hátt

Advania Eya er hagnýt tvítyngd spunagreindarlausn Advania, knúin af Private Chat GPT-4o tungumálamódelinu. Advania Eya er hönnuð bæði fyrir íslensku og ensku, býður upp á nákvæm svör og skilning á flóknum skipunum með ítarlegum skilningi á tilteknum orðaforða. Advania Eya er notendavæn, heldur samfelldum þræði samtala og vísar í heimildir innan gagnasafna.

Advania Eya gerir fyrirtækjum kleift að fella eigin gögn á öruggan hátt inn í fyrirspurnir sem tryggir trúnað og öryggi. Þetta gerir Advania Eya að öruggu hagnýtu gervigreindarverkfæri sem eykur skilvirkni og möguleika fyrirtækja til að rýna í eigin gögn án þess að stefna þeim í hættu.

Skoða nánar
Stígðu inn í framtíðina með Copilot

Copilot fyrir Microsoft 365

Copilot fyrir Microsoft 365 er kraftmikið gervigreindartól sem samþættir máltækni og gagnabanka til að styðja starfsfólk við dagleg verkefni. Það bætir samvinnu og eykur sköpunarkraft með sjálfvirkni. Samþætting við vinsæl forrit eins og Word, Excel, Powerpoint, Outlook og Teams auðveldar svo vinnuna enn frekar.

Skoða nánar

Gervigreindarský

Með gervigreind í skýi geta fyrirtæki fengið aðgang að öflugri GPU tækni eftir þörfum, sem gerir þeim kleift að nýta sér hámarks afkastagetu fyrir ýmsar vinnslur, þar á meðal gervigreind (AI), reiknigetu og gagnaúrvinnslu.

Sjáðu nánar um gervigreindarský
gerum þetta saman

Gögnin eru lykillinn

Vinnustaðir hafa aldrei haft úr jafn miklu magni af gögnum að vinna. Þetta opnar á ótalmarga möguleika í auknu innsæi og sjálfvirkni með hjálp gervigreindar. Möguleikarnir eru miklir en áskoranir geta verið gríðarlegar. Fáðu aðstoð við uppsetningu og frágang til að allt fari rétt og örugglega fram.

Spjöllum saman

Öryggi gagna

Öll gögn og vinnsla eru í þínu eigin Azure umhverfi. Þau eru því ekki nýtt í kennslu á gervigreindarmódelum utan vinnustaðarins.

Auðveld uppsetning

Sérfræðingar Advania sérsníða uppsetninguna að hverjum vinnustað.
Innskráning tengist við fyrirtækið og því hægt að nota single sign-on í stað margra lykilorða.

Nýjasta tækni

Hægt er að nýta nýjustu útgáfu ChatGPT. Bæði 3.5 og 4. Hún bæði skilur íslensku og getur unnið með nýjustu upplýsingar.

Bylting í vinnulagi

Private ChatGPT virkar eins og önnur gervigreindarmódel: notandinn skrifar beiðnir á mannamáli, til að mynda skrif á texta, samantekt og jafnvel hugmyndavinnu. Allt með gögnum frá þínum vinnustað.

Dæmi um aðrar lausnir í boði

Azure þjónustur

Í Azure eru yfir 200 lausnir og þjónustur hannaðar til að leysa áskoranir nútímans.

Microsoft Purview

Purview verndar gögn með því að finna, skipuleggja og vakta hvernig gögn fyrirtækisins eru notuð ásamt því að tryggja að þau séu örugg og reglum sé fylgt. Purview er skýjaþjónusta sem samþættist bæði gagnaveitum í skýinu og „á staðnum.“

Copilot Studio

Copilot Studio gerir þér kleift að búa til þína eigin gervigreindarfulltrúa, sérsniðnir að þínum þörfum, tengda við þín gögn og samþætta við þín tölvukerfi.

Microsoft Power Platform

Með innleiðingu á Power Platform á vinnustaðinn þinn veitirðu starfsfólkinu aukinn nýsköpunarkraft með auðveldum hætti.

Boost.ai spjallmenni

Spjallmenni er þróaðri útgáfa af því sem oft er kallað Chatbot á ensku. Lausnin nýtir tækni sem nefnist samræðugreind (e. conversational AI) til að halda uppi eðlilegu samtali við viðskiptavini og skilja þarfir þeirra.

Á döfinni í heimi gervigreindar

Fréttir
„Hvað ætlar þitt fyrirtæki að gera í gervigreind?“ er líklega algengasta spurningin sem stjórnendur fyrirtækja hafa spurt og verið spurðir að síðastliðið ár. Gervigreindarsetur Advania hefur farið af stað með 90 daga hraðal þar sem markmiðið er að fyrirtæki taki skýr skref í átt að virðisaukandi nýtingu gervigreindar í rekstri.
Blogg
20.01.2026
Gervigreind hefur á undanförnum misserum orðið órjúfanlegur hluti af daglegu vinnuflæði á flestum vinnustöðum. Starfsmenn nýta alls konar tól til að auka afköst, skrifa texta, greina gögn og búa til efni – oft án þess að hugsa sig tvisvar um. Þetta getur verið frábært, því rétt notuð getur gervigreind hjálpað fólki að blómstra í starfi!
Blogg
10.12.2025
Það er gaman að segja frá því að næsta skref í þróun og reiknilíkönum fyrir gervigreind er á leiðinni. Advania kynnti fyrir stuttu NVIDIA DGX Spark vélina sem seldist upp samdægurs, nú er komið að Dell að taka við keflinu.

Námskeið framundan

Advania skólinn býður reglulega upp á fjölbreytt námskeið um ýmis efnisatriði, meðal annars gervigreind.

Skoða öll námskeið
spjöllum saman

Eigum við að ræða þína möguleika?

Sendu okkur línu og við höfum samband um hæl.