Alveg í skýjunum
Azure
Microsoft Azure notar marglaga öryggisvarnir fyrir gagnaver, innviði og annan rekstur. Í Azure eru einnig sérstakar varnir gegn DDoS-árásum og öðrum öryggishættum í netlaginu, til að stuðla að öryggi gagna.
Í Azure er hægt að hafa umsjón með forritum, byggja upp og stýra rekstri þjónusta milli mismunandi skýja. Hvort sem reksturinn er eingöngu í skýinu eða blandað umhverfi skýja og tölvubúnaðar á staðnum. Fyrirtæki greiða eingöngu fyrir þá þjónustu og gagnamagn sem þau nota sem eykur fyrirsjáanleika í rekstrarkostnaði.
Advania býður heildstæða rekstrarþjónustu og ráðgjöf í hönnun og uppsetningu á skýjalausnum sem henta fyrir þitt fyrirtæki.
Skipulag á Azure umhverfinu þínu
Azure býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og sífellt fleiri fyrirtæki eru að kjósa að nýta Azure fyrir skýjalausnir á sviðum gervigreindar, hugbúnaðar og snjallforrita þróunar, gagnagreiningar, IoT tækja, netöryggis o.s.frv.
Til þess að nýta mátt Azure og allrar framþróunar sem er að eiga sér stað þar er lykilatriði að hafa Azure umhverfið sitt í lagi, alveg frá byrjun. Sérfræðingar okkar hjálpa þér að byggja upp umhverfi sem gerir þér kleift að gera það sem þú vilt í Azure.
Windows virtual desktop
Þessi þjónusta hentar vel fyrir fyrirtæki af hvaða stærðargráðu sem er sem vilja mikinn sveigjanleika fyrir notendur sína og þurfa að geta skalað tölvuumhverfið sitt. Windows Virtual Desktop getur komið í staðinn fyrir tölvuver og hentar vel fyrir fjarvinnu og tímabundin verkefni. Notendur geta nálgast, með öruggum hætti, staðlað skjáborð og önnur forrit hvar sem er, í hvaða tæki sem er.
Það getur verið flókið og dýrt að setja upp sértækan hugbúnað á mörgum tækjum en í Windows Virtual Desktop er nóg að setja hann upp á einum stað, og dreifa svo til notenda með Azure. Reksturinn á hugbúnaðinum verður einfaldari og ódýrari. Með WVD dregur þú úr kostnaði með því að nota leyfi sem mjög líklega eru nú þegar eru til staðar í þínu Microsoft umhverfi.
Advania býður heildstæða ráðgjöf og innleiðingar í Windows Virtual Desktop.
Hentar fyrirtækjum
- Sem vilja mikinn sveigjanleika fyrir notendur sína
- Sem vilja geta skalað tölvuumhverfið sitt á einfaldan og fljótlegan hátt
- Sem vilja bjóða starfsfólki skilvirkt fjarvinnuumhverfi
- Sem eru í tímabundnum verkefnum, t.d. með sértækum kerfum
Spjöllum saman um Azure & infrastructure
Rekstraþjónusta í þremur áskriftarleiðum
Base
Fyrir aðila sem vilja hafa mikla stjórn á upplýsingatækniumhverfinu sínu en þó njóta aðstoðar sérfræðinga Advania inn á milli.
Standard
Fyrir aðila sem vilja útvista rekstri á völdum kerfishlutum. Leið sem hentar fyrirtækjum sem vilja verja minni tíma í grunnrekstur tækniumhverfis.
Premium
Fyrir aðila sem vilja eftirláta sérfræðingum Advania rekstur á upplýsingtækniumhverfinu og fá meiri tíma til sinna kjarnahæfni sinni.