Örugg innleiðing Copilot á aðeins nokkrum vikum

Við hjálpum fyrirtækjum að byggja öruggan grunn, hæfni starfsfólks og skýra leið að sjálfvirkni. Þannig verður Copilot og sértækir erindrekar ekki bara ný tól, heldur hluti af daglegu starfi og grunni fyrir næstu skref í gervigreind.

Spjöllum saman
Við þekkjum framtíðina
BYRJIÐ ÞAR SEM ÞIÐ ERUÐ STÖDD Í DAG

Þrjú skref að öruggri innleiðingu

Komið Copilot örugglega í notkun í þremur einföldum skrefum. Byrjið þar sem þið eruð stödd og veljið þau skref sem henta ykkar þörfum.

1. Gerum umhverfið tilbúið

Áður en Copilot er tekinn í notkun þarf að vita hvaða gögn eru aðgengileg og hver hefur aðgang að þeim.

Við kortleggjum SharePoint og OneDrive, greinum mögulega ofdeilingu og forgangsröðum úrbótum. Síðan herðum við umhverfið í samráði við ykkur.

2. Komum fólkinu af stað

Við sjáum um kennslu, höldum vinnustofu með starfsfólki og veitum stjórnendaráðgjöf

Leyfi eru ekki það sama og virði. Starfsfólk þarf að kunna að nota Copilot í eigin verkefnum og skilja hvernig best er að vinna með gervigreind á öruggan og markvissan hátt.

3. Frá aðstoð yfir í sjálfvirkni

Þegar grunnurinn er til staðar og fólkið komið af stað er hægt að taka næsta skref.

Erindrekar eru hannaðir fyrir tiltekin verkefni, gögn og kerfi og geta tekið við verkefnum sem áður þurftu mannlega afgreiðslu.

3-5 VIKUR

Gerum umhverfið tilbúið

Áður en Copilot er tekið í notkun þarf að vita hvaða gögn eru aðgengileg og hver hefur aðgang að þeim.

Á 3-5 vikum kortleggjum við SharePoint og OneDrive, greinum mögulega ofdeilingu og forgangsröðum úrbótum. Umhverfið er í framhaldinu hert í samráði við ykkur.

Við greinum meðal annars:

  • Skjalasvæði sem eru opin of breiðum hópi
  • Opna hlekki og ytri aðgang
  • Eigendalaus og óvirk svæði
  • Brotnar heimildastýringar
  • Viðkvæm gögn sem þarfnast merkingar

Þið fáið:

  • Stöðuskýrslu um aðgang og ofdeilingu
  • Forgangsraðaðan aðgerðalista
  • Tillögur að öryggisherðingu
  • Ráðleggingar um deilingu og eignarhald
  • Staðfestingu á að umhverfið sé tilbúið fyrir Copilot
12 KLST.

Komum fólkinu af stað

Við veitum starfsfólki og stjórnendum ráðgjöf og þjálfun í Copilot.

Grunnnámskeið - Fyrstu skrefin með Copilot

3 klst. námskeið þar sem farið er vel yfir grunninn, góðar venjur, skipanir og hagnýt dæmi Copilot í Word, PowerPoint, Excel, Outlook og Teams. Engin þörf er á framhaldsnámskeiði, þetta inniheldur allt sem notendur þurfa til að fara hratt og örugglega af stað.

Leiðtogakennsla - Námskeið og vinnustofa

Heill dagur þar sem farið er yfir grunninn, öryggi og góðar venjur með leiðtogum innan fyrirtækisins ásamt hagnýtum dæmum og ábyrgð leiðtoga.

Stjórnendaráðgjöf – Hámörkun á virði

1 klst. fundur þar sem veitt er markviss ráðgjöf um meginþætti innleiðingar, leiðtoga, menningu, gervigreindar-hæfni, stjórnsýslu og tæknistefnu.

4-8 VIKUR

Frá aðstoð yfir í sjálfvirkni

Copilot er almennur aðstoðarmaður á meðan erindreki er hannaður til að taka við verkefnum sem áður kröfðust handavinnu.

Erindrekar geta til dæmis:

  • Svarað spurningum úr innri kerfum
  • Aðstoðað þjónustuborð
  • Skráð erindi og fylgt þeim eftir
  • Sótt upplýsingar úr viðskiptakerfum

Við byrjum á einum erindreka með mælanlegt virði og smíðum umgjörðina í kringum hann.

Ferlið nær frá virðismati og umgjörð yfir í smíði, prófun og rekstur. Þannig verður erindrekinn ekki bara tæknileg lausn heldur hluti af stýrðu og mælanlegu verkflæði.

Dæmigerð tímalengd á fyrsta erindreka eru 4-8 vikur. Gerð næsta tekur styttri tíma.

GERVIGREINDARTÓLIN

Lausnir sem styðja við vegferðina

Varða

Varða greinir SharePoint og OneDrive umhverfið þitt, metur raunverulega áhættu og setur niðurstöðurnar fram í skýru og mælanlegu formi.

Kynntu þér Varða

Copilot fyrir Microsoft 365

Gervigreind sem styður starfsfólk í daglegum verkefnum með sjálfvirkni og gagnadrifinni aðstoð. Samþætting við Microsoft 365 eykur framleiðni og einfaldar vinnuferla.

Kynntu þér Copilot

Microsoft Copilot Studio

Þróaðu þína eigin erindreka (e. agents) sem eru tengdir við gögn, ferla og kerfi fyrirtækisins. Sjálfvirknivæðing og betri þjónusta með lausnum sem laga sig að þínum þörfum.

Kynntu þér Copilot Studio
Vegferðin hefst þar sem þið eruð stödd

Tilbúin að hefja ykkar vegferð?

Hvort sem það er að tryggja öryggi gagna, þjálfa starfsfólk eða finna fyrsta verkefnið sem hentar fyrir erindrekann.

Spjöllum saman

Fréttir af Microsoft lausnum

Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Í dag eru flestir farnir að nota gervigreind, hvort sem það er heima eða í vinnu. Copilot fyrir Microsoft 365 er eitt af þeim gervigreindartólum sem getur gert lífið miklu einfaldara. Hann hjálpar við að skrifa, skipuleggja, finna upplýsingar og klára verkefni hraðar. Flestir byrja á Copilot Chat, en ef þú vilt virkilega fá sem mest út úr Copilot, þá er fulla útgáfan af Copilot málið.
Viltu vita meira?

Tilbúin að hefja vegferðina?

Við byrjum á stöðufundi, þér að kostnaðarlausu.

Á einni klukkustund förum við yfir hvar þið standið, hvaða leyfi eru til staðar og hvað er raunhæft að gera næstu mánuði. Í kjölfarið skilgreinum við umfang, tímalínu og næstu skref.