Kostir Kolku felast í því að hún reiknar út losun á áhrifaríkan hátt, sparar tíma með einföldu ferli skýrslugerðar og tryggir rekjanleika og samræmi við fjárhagsgögn. Þetta gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um umhverfisáhrif sín á skilvirkan og áreiðanlegan hátt.
Tímasparnaður að halda grænt bókhald
Lausnin auðveldar notendum að ná markmiðum sínum að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni, með því að auðvelda aðgengi að réttum og samræmdum upplýsingum. Þannig gefst meiri tími í að koma auga á möguleika til úrbóta og eftirfylgni verður markvissari.
Á einfaldan hátt er hægt að nálgast upplýsingar fyrir skýrslugerð og grænt bókhald sérsniðið að þínum þörfum.
Sjálfbærni og lögbundin upplýsingagjöf
Stöðug krafa er um að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi fyrirtækja og aukin krafa er um upplýsingagjöf því tengdu, til dæmis sjálfbærniskýrslur.
Nýjar lagakröfur gera mörgum fyrirtækjum skylt að skila slíkum skýrslum árlega. Aukin áhersla er því á málefni sjálfbærni hjá íslenskum fyrirtækjum og gott aðgengi að vönduðum upplýsingum um umhverfisáhrif eru mikilvægari en áður. Kolka er lausn sem fyrirtæki geta notað í þeirri vegferð.