Netöryggi snýst um meira en einstakar lausnir
Þegar netöryggismálum er sinnt með mörgum aðskildum lausnum og birgjum getur heildarmyndin tapast. Ábyrgðin verður óskýr, forgangsröðunin flókin og erfitt að sýna fram á árangur.
Við trúum á aðra nálgun. Netöryggi þarf að vera samfelld vegferð þar sem aðgerðir vinna saman og taka mið af raunverulegri áhættu fyrirtækisins.
Dregið úr áhættu í skrefum
Þið þarft ekki að gera allt í einu. Við hjálpum ykkur að greina hvar áhættan liggur og forgangsraða næstu skrefum út frá þörfum fyrirtækisins.
Vitið hvar þið standið og getið sýnt fram á það
Fáið betri yfirsýn yfir netöryggismálin og stuðning við að sýna fram á framvindu, ábyrgð og eftirfylgni.
Einn samstarfsaðili með skýra ábyrgð
Við samhæfum lausnir og samstarfsaðila svo þið þurfið ekki að halda utan um hvert verkefni sjálf.