Sérþekking styrkt með Evolv
Með kaupum á Evolv hefur Advania styrkt stöðu sína enn frekar á sviði sjálfvirkni, ferlalausna og gervigreindar. Evolv hefur á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu á íslenskum markaði með framsæknum lausnum sem hafa hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að hraða stafrænni umbreytingu og nýta sér tæknina til að einfalda daglegan rekstur.
Lausnir og aðferðafræði Evolv hafa þegar sannað gildi sitt hjá fjölmörgum viðskiptavinum og styrkja nú enn frekar getu Advania til að veita heildstæða þjónustu á sviði sjálfvirkni og gervigreindar, bæði á Íslandi og gagnvart viðskiptavinum Advania víðsvegar um Evrópu.
Sjá nánar