Dell Pro er komin

Stígðu inn í framtíðina með splunkunýrri AI tölvulínu Dell.
Nýtt útlit, ný tækni og enn betra öryggi.

Sjáðu tölvurnar

Dell Pro

Dell Pro línan er með nýtt og ferskt útlit og er aðallega hugsuð fyrir fólk á vinnumarkaði. Fartölvurnar eru meðal minnstu og léttustu fartölva í sínum flokki. Gerðar úr endingargóðum og traustum efnum og fara létt í gegnum vinnudaginn.

Sjá í vefverslun

Dell Pro

Hagkvæmasta útgáfan af línunni. Þær eru fáanlegar í 14“ og 16“ skjástærðum í 16:10 hlutföllum. Þær eru með einstaklega góðri rafhlöðuendingu, og á sérstaklega góðum kjörum.

Dell Pro Plus

Ein sveigjanlegasta fartölvan fyrir fyrirtæki í heiminum og mætir þörfum allra tegunda starfsmanna. Hún er fáanleg í ýmsum gerðum og í nokkrum skjástærðum.

Dell Pro Premium

Copilot+ tölvan fyrir fólk á ferðinni. Hún er létt og verulega flott, en öflug fartölva fyrir þá sem meta afköst og meðfærileika. Hún er fáanleg í 13 og 14 tommu skjástærðum og er grennsta og léttasta tölvan í Pro línunni.

Sjá í vefverslun

Dell Pro Premium 5G

Dell Pro Premium með innbyggðu 5G módemi opnar fyrir ótal möguleika. Með nýjustu tækni upplifir starfsfólk alvöru sveigjanleika með alvöru öryggi - svo til hvar sem er.

Dell Pro Premium OLED

Tandem OLED skjárinn lífgar upp á vinnuna með raunverulegum litum. Skjárinn notar 24% minni orku og er 49% léttari en hefðbundnir OLED skjáir.

Dell Pro Max

Er hönnuð fyrir krefjandi forrit. Þær eru mjög svipaðar Dell Pro í útliti, en er með tækni sem býður upp á hæstu afköst í vinnutölvum. Ný 16“ útgáfa gerir flókna vinnu sérstaklega þægilega og með stuðningi við allt að NVIDIA RTX 2000 Ada skjákort, er krafturinn kominn sem þarf fyrir gervigreindargreiningu, myndvinnslu og skapandi vinnu.

Sjáðu í vefverslun

Dell Pro Max Plus

Hönnuð til að vera eins skalanleg og vinnustöðvar geta orðið. Fleiri tengi, fleiri möguleikar og fleiri skjástærðir.

Dell Pro Max Premium

Ný tegund afkastamikilla fartölva með afar þunnri og léttri hönnun. Kjörin fyrir þá sem vilja að vinnustöðin þeirra sé ekki bara öflug, heldur líka flott.

Dell skjáir

Skjáirnir frá Dell hafa fyrir löngu sannað sig sem einir þeir bestu í bransanum. Nú fá þeir einnig ný nöfn til að einfalda valið enn frekar. Hinir frábæru UltraSharp eru enn hér, en við hlið þeirra koma nú Dell og Dell Pro línurnar.

Sjáðu í vefverslun

Dell

Hagkvæmir skjáir fyrir heimili jafnt sem vinnustaði.

Dell Pro

Línan sem býður upp á mesta úrval stærða og tengimöguleika. Sérstaklega hannaðir fyrir vinnustaðinn.

Dell UltraSharp

Besta mögulega tæknin í flottustu umbúðunum. Þeir sem vilja bara það besta, velja UltraSharp.

bestu kjörin og frí heimsending

Kláraðu málin í vefverslun

Skrá inn núna