Við erum til þjónustu reiðubúin
Á þjónustuverkstæði er viðskiptavinurinn í fyrirrúmi í öllu sem við gerum. Við leitumst við að veita framúrskarandi þjónustu og veita góðar upplýsingar um verkefnin sem unnið er að á hverjum tíma. Ekki hika við að kíkja á þjónustuverkstæði okkar, hringja í 440 9000 eða senda okkur skilaboð ef þig vantar aðstoð með þinn tölvubúnað.
Ábyrgðarþjónusta
Þjónustuverkstæði okkar eru einu viðurkenndu verkstæði fyrir Dell tölvubúnað á Íslandi, Dell Authorized Service Center, en einnig sinnum við ábyrgðarviðgerðum og ábyrgðaþjónustu á búnaði frá mörgum öðrum framleiðendum vara sem Advania selur.
Viðgerðarþjónusta
Ekki falla allar bilanir undir ábyrgð og til viðbótar býður verkstæði Advania upp á víðtæka viðgerðarþjónustu á tölvubúnaði, frá smáum til stærri viðgerða.
Önnur þjónusta
Utan ábyrgða- og viðgerðaþjónustu bjóða verkstæðin breitt úrval annarrar þjónustu til að auðvelda viðskiptavinum lífið. T.d uppfærslupakka á eldri tölvum og hreinsanir.