Blogg - 19. október 2026

Gervigreindin er mætt í dótið: vel heppnaður dótadagur á Akureyri

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.

Markaðurinn: hækkanir sem enginn kemst hjá

Sævar Ríkharðsson opnaði daginn á stöðunni á markaðnum og fór yfir þá þrálátu verðþróun sem einkennir bæði tölvur og netþjóna um þessar mundir. Staðan á minnismarkaði er þar stór áhrifaþáttur og hún smitast beint út í verð á öllum búnaði. Skilaboðin voru skýr: tímasetning innkaupa skiptir meira máli núna en oft áður.

Hvað er eiginlega NPU, TOPS og Copilot+?

Næst var farið yfir hugtökin sem allir sjá í auglýsingum en færri treysta sér til að útskýra. NPU er sérhæfður gervigreindarkjarni í örgjörvanum, TOPS er mælikvarðinn á hvað hann afkastar og Copilot+ er sá þröskuldur sem vél þarf að ná til að keyra gervigreind beint á tækinu í stað þess að senda allt í skýið. Munurinn skiptir máli í praxís: minni töf, minni skýjakostnaður og gögnin verða eftir hjá þér.

Nýtt frá Dell

Farið var yfir allt það nýjasta í Dell Pro fyrirtækjalínunni og Dell Pro Rugged vöruvalið, vélarnar sem eru byggðar fyrir aðstæður þar sem venjulegar fartölvur gefast upp. Þá var litið fram á veginn og kynntar væntanlegar nýjungar, þar á meðal Dell XPS með NVIDIA RTX Spark og Dell XPS Googlebook.

Gervigreindarvélarnar: GB10 og GB300

Stærstu tölurnar komu með Dell Pro Max With GB10 og Dell Pro Max With GB300. Þetta eru vélar sem keyra stór mállíkön á staðnum, á skrifborðinu, án þess að viðkvæm gögn fari nokkru sinni út fyrir húsið. Fyrir fyrirtæki sem vilja nýta gervigreind en mega ekki senda gögn út í heim er þetta einmitt brúin sem vantaði.

Advania og Logitech

Þá var tilkynnt það sem mörgum þótti tíðindi: Advania er fyrsti og eini opinberi samstarfsaðili Logitech á Íslandi. Það þýðir beinni aðgang að vörulínunni, þekkingunni og stuðningnum á bak við hana.

Gervigreind í heyrnartólunum

Sigurgeir Þorbjarnarson vörustjóri tók við og fór yfir Samskiptalausnir, þar sem gervigreindin er komin mun lengra inn í búnaðinn en flestir átta sig á. Evolve3 línan frá Jabra fékk sérstaka athygli: hljóðneminn notar gervigreind til að einangra röddina og sía burt umhverfið, og skilar fullkomnu hljóði þrátt fyrir að hafa engan útdraganlegan hljóðnema. Tólin líta út eins og venjuleg heyrnartól en hljóma eins og þú sitjir í hljóðveri.

Einnig var komið inn á Genesys samskiptaverslausnina, sem byggir að stórum hluta á gervigreind.

Rúsínan í pylsuendanum: Verkada

Síðastur á svið var Asbjorn Sorensen frá Verkada, og þar var gervigreindin í hverju horni. Í stað þess að skrolla tímunum saman í gegnum upptökur leitar þú einfaldlega að „maður með grímu“ eða „appelsínugul Tesla Model Y“ og kerfið finnur það.

Gervigreindin er líka byggð inn í myndavélarnar sjálfar og getur sent viðvörun þegar einhver dettur, klifrar yfir girðingu eða þegar slagsmál brjótast út. Nýjast er hljóðkerfið sem er orðið hluti af lausninni, þar sem hægt er að láta kerfið kalla á fólk sem er statt þar sem það á ekki að vera: „Þú þarna í gulu peysunni, ekki fara þangað.“ Salurinn kunni vel að meta það.

Verkada er í mikilli sókn sem hybrid lausn sem þarf ekki að stóla á netþjóna, og sleppur þannig við þær hækkanir sem þar eiga sér stað þessar stundirnar.

Næsti fundur: Reykjavík 27. október

Morgunverðarfundur þar sem allt það nýjasta í Genesys samskiptaversslausninni verður kynnt. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum.

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.