Fréttir - 6. febrúar 2020

Margrét nýr framkvæmdastjóri hjá Advania

Margrét Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna Advania.

Margrét Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna Advania. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2018, fyrst sem forstöðumaður á rekstrarlausnasviði og nú síðast sem forstöðumaður mannauðslausna.

Margrét hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hún var áður vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já, sviðsstjóri hjá Wise og rekstrarstjóri tækniþjónustu Íslandsbanka.
Margrét stýrir nú fjölmennu sviði og því tilheyra veflausnir, skólalausnir, rafræn viðskipti, mannauðslausnir, sala og ráðgjöf. Í einingum sviðsins er fengist við hugbúnaðarþróun, þjónustu, ráðgjöf og innleiðingar ásamt sölu á vörum Advania og lausnum samstarfsaðila.

Margrét tekur við af Önnu Björk Bjarnadóttur sem hverfur til annarra starfa. Advania þakkar Önnu Björk kærlega fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

„Það er virkilega gaman að vera treyst fyrir þessu verkefni. Ég veit ekkert skemmtilegra en að skapa virði fyrir viðskiptavini með notkun tækninnar. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með því frábæra fólki sem starfar hjá ráðgjöf og sérlausnum Advania, og nú í nýju hlutverki. Okkar markmið er eftir sem áður að hjálpa okkar viðskiptavinum við að ná sem bestum árangri í sínum verkefnum,“ segir Margrét.

Þórður Ingi Guðmundsson tekur við sem forstöðumaður mannauðslausna Advania. Hann er með BS gráðu í eðlisfræði og vélaverkfræði, og MS gráðu í orkuverkfræði. Hann hefur verið hjá Advania í ár og þar á undan vann hann í sex ár við þróun greiðslulausna hjá Valitor.

Framkvæmdastjórn Advania skipa þau Ægir Már Þórisson forstjóri, Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Sigrún Ámundadóttir, Einar Þórarinsson, Jón Brynjar Ólafsson og Margrét Gunnlaugsdóttir.

Fleiri fréttir

Blogg
04.06.2015
Notendaráðstefna Oracle, OAUG Collaborate 2015, var haldin í Las Vegas í apríl síðastliðnum.
Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Blogg
07.04.2015
Nú eru þrjú ár síðan við Advania bloggið kom fyrst út og er þetta færsla númer 136.
Blogg
31.03.2015
Ný rannsókn frá greiningarfyrirtækinu Gartner sýnir mikla þörf hjá stjórnendum og sérfræðingum á að hafa lykilupplýsingar úr rekstri óháð stað og stund.
Blogg
24.03.2015
Planet Labs hannar, smíðar og rekur stóran flota af örsmáum gervihnöttum sem mynda yfirborð jarðarinnar oftar en áður en hefur þekkst.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.