Gunnar Smári Agnarsson og Guðmundur Arnar Sigmundsson stýrðu fyrsta veffundi Advania í Öryggisoktóber. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 20. október 2026

Netárás á 27 sekúndum: hvernig byggjum við upp seiglu?

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.

Í fyrsta veffundi Advania í Öryggisoktóber ræða Gunnar Smári Agnarsson netöryggisráðgjafi og Guðmundur Arnar Sigmundsson, netöryggis- og gagnaþróunarstjóri Advania, um netöryggisseiglu á tímum gervigreindar. Þar kemur meðal annars fram að innbrot í gegnum veikleika í kerfum eru í fyrsta sinn í langan tíma orðin algengari en hefðbundnar svikaárásir. Gervigreindin er jafnframt hætt að vera ráðgjafi netglæpamanna og farin að framkvæma árásirnar sjálf.

Það er þó mjög mikilvægt að hafa í huga að sama tækni gefur þeim sem verjast líka forskot sem áður var aðeins á færi stærstu fyrirtækja í heimi. Guðmundur fer meðal yfir hvað fyrirtæki og einstaklingar geta gert strax, og hvers vegna fyrsta flugslysið var fundið upp sama dag og fyrsta flugvélin.

Upptakan frá fundinum er nú aðgengileg á vefnum okkar.

Október er tileinkaður netöryggi víða um Evrópu. Öryggisoktóber, eða Evrópski netöryggismánuðurinn (European Cybersecurity Month), er haldinn ár hvert að frumkvæði Netöryggisstofnunar Evrópusambandsins (ENISA) og framkvæmdastjórnar ESB. Markmiðið er að efla vitund fyrirtækja, stofnana og almennings um netógnir og góðar öryggisvenjur. Í ár bjóðum við í Öryggisoktóber upp á veffundaröð. Netöryggisseiglan sem fjallað er um hér að ofan var fyrsti fundurinn í röðinni. Á næstu fundum verður talað um gervigreind í árásum og vörnum og öryggi í Microsoft 365, meðal annars með reynslusögu frá Sjóvá.

Allir fundirnir eru sýndir á vefnum okkar. Næstu fundir fara fram 22. október, 27. október og 29. október. Fundirnir hefjast slaginu kl. 10:00 og skráning er ókeypis og öllum opin.

Fleiri fréttir

Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.