Viðskiptakerfadagur Advania 2026

Vertu með þegar sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft koma saman til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni á Hilton Reykjavík Nordica 11. mars 2026.

Miðaverð: 4.900 kr.

Á Viðskiptakerfadegi Advania 2026 færðu innsýn í hvernig fyrirtæki geta nýtt nýjustu lausnir í Dynamics 365, Power Platform og Copilot til að auka skilvirkni, draga úr handtökum og skapa raunverulegan rekstrarávinning.

Svona lítur dagurinn út

Framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni

Byrjum daginn saman

Sameiginleg lína

Sameiginleg lína setur tóninn fyrir daginn með áherslu á stöðu og framtíð viðskiptakerfa. Fjallað er um hraða þróun gervigreindar og Copilot-lausna, vegferðina að sjálfvirkum ERP-kerfum og hvernig fyrirtæki geta farið frá hugmyndum yfir í raunverulega hagnýtingu og mælanlegt virði.

Eftir það skiptist dagskráin í þrjár sérhæfðar línur þar sem þátttakendur velja þá línu sem á best við þeirra hlutverk og áskoranir.

val lína 1

Business Central línan

Hagnýt ráð, sjálfvirkni og gervigreind til að vinna hraðar og snjallara í Business Central.

val lína 2

F&O línan

Undirbúningur innleiðingar, raun­dæmi, nýjungar í Master Planning og skilvirkari vinnusíður í D365 F&O.

val lína 3

Power Platform línan

Einföld ráð í Power BI og Power Automate, raun­saga úr rekstri og Copilot Studio í beinni.

12:30 - 14:15

Sameiginleg lína

SALUR AB

13:00 - 13:15

Sigríður Sía Þórðardóttir býður gesti velkomna á viðskiptakerfadag Advania 2026.

Sigríður Sía Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptalausna Advania


SALUR AB

13:15 - 13:55

AI adoption is accelerating fast and it’s changing what businesses should expect from ERP. In this keynote, we’ll explore the road to autonomous ERP and what it takes to become a Frontier Firm, where Copilot is the user gateway and agents power end-to-end business processes. We’ll unpack the blueprint for agentic ERP in eg. Dynamics 365, including adaptive Copilot experiences and an ERP agent foundation. We’ll close with a practical call to action: how to move from experimentation to real impact by activating and adopting agents that are available today and start riding the wave!

Kit Ingwersen, Business Group Lead hjá Microsoft


SALUR AB

13:55 - 14:15

Í þessum fyrirlestri skoðum við dæmi um hvernig viðskiptavinir Advania hafa nýtt nýjustu tækninýjungar, sjálfvirkni, Power Platform og gervigreind, til að breyta eigin kerfum og ferlum. Með hagnýtri innleiðingu á þessum lausnum hafa fyrirtæki sparað bæði tíma og fjármuni, aukið rekstraröryggi og bætt upplifun starfsfólks og viðskiptavina.

Högni Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptalausna


14:15 - 14:35

Kaffihlé ☕

Kaffiveitingar

Léttar kaffiveitingar í boði. Eftir hlé verður erindum skipt niður á línur í þrjá sali. Velja þarf línu við skráningu.

14:35 - 16:00

Business Central

salur ab

14:35 - 15:05

Okkar helstu sérfræðingar Ragnheiður og Hjörtur deila ýmsum hagnýtum ráðum sem gera vinnu í Business Central skilvirkari og þægilegri. Hér verður farið í gegnum bestu trixin, stillingarnar og aðferðirnar sem geta sparað tíma og hámarkað nýtingu kerfisins, bæði í stöðluðu Business Central sem og með notkun viðbóta Advania.

Hjörtur Geirmundsson

Hjörtur Geirmundsson, hugbúnaðarsérfræðingur

Hjörtur Geirmundsson

Ragnheiður Valdimarsdóttir, Business Central ráðgjafi


salur ab

15:05 - 15:35

Fáðu innsýn í hvernig þú getur nýtt gervigreind, sjálfvirkni og snjallar lausnir til að einfalda dagleg verkefni í Business Central. Farið verður yfir hvernig gervigreindartól geta unnið handavinnuna fyrir þig, greint gögnin þín, hjálpað til við afstemmingar og dregið úr villum. Þetta er erindi fyrir alla sem vilja auka virði Business Central í daglegum rekstri.

Jóhanna Kolbjörg Sigurþórsdóttir, vörustjóri Business Central

Hugi Freyr Einarsson, forstöðumaður Business Central


Business central

15:35 - 16:00

Hér gefst gestum tækifæri til að spyrja fyrirlesara um þau viðfangsefni sem farið var yfir á Business Central línunni.

Guðrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu Business Central


14:35 - 16:00

Finance & Operations

SALUR AB

14:35 - 14:55

Orkuveitan segir frá vegferð sinni og undirbúningi vegna innleiðingar í D365 F&O. Rakel og Laufey ræða í kjölfarið mikilvæg atriði sem huga þarf að við undirbúning innleiðingar.

Anna Guðný Andersen, Orkuveitan

Rakel Tómasdóttir, verkefnastjóri F&O

Laufey Ása Bjarnadóttir, verkefnastjóri F&O


SALUR AB

14:55 - 15:15

Farið verður yfir nýja virkni í Master Planning, sem nýlega var útvíkkuð af Microsoft og þá möguleika sem eru í boði ásamt Demand Forecasting.

Athugið að erindið fer fram á ensku.

Benjamin Jon Cleugh, F&O ráðgjafi


SALUR AB

15:15 - 15:35

Farið verður yfir einfaldar leiðir til að sérsníða vinnusvæðið þitt að því sem þú ert að gera og sía út það sem þú þarft ekki að vita af.

Björn Sævar Ólafsson, F&O ráðgjafi


SALUR AB

15:35 - 16:00

Hér gefst gestum tækifæri til að spyrja fyrirlesara um þau viðfangsefni sem farið var yfir á F&O línunni.

Einar Óli Kristófersson, deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu F&O


14:45 - 16:00

Power Platform

SALUR HI

14:35 - 14:55

Hagnýt og einföld ráð sem gera þig skilvirkari í vinnunni. Lærðu hvernig þú getur nýtt Power BI til betri yfirsýnar og Power Automate til að spara tíma í endurteknum verkefnum. Þetta er "take away" sem þú getur byrjað að nota strax eftir fundinn.

Þóra Regína Þórarinsdóttir, ráðgjafi gervigreindar og sjálfvirkni


SALUR HI

14:55 - 15:15

Reynir hjá Kjarnafæði Norðlenska deilir því hvernig þau nýttu Power Platform til að sjálfvirknivæða ferla, bæta gagnasýn og auka skilvirkni í rekstri. Hvað virkar best? Hvaða áskoranir komu upp? Hver er ávinningurinn í dag?

Reynir B. Eiríksson, Kjarnafæði Norðlenska


SALUR HI

15:15 - 15:35

Við búum til erindreka (e. agent) frá grunni í Copilot Studio - í beinni! Við sýnum hvernig hægt er að tengja við gagnasöfn, skilgreina aðgerðir og birta lausnina í Teams. Þátttakendur fá að sjá hversu einfalt er að fara frá hugmynd yfir í virka lausn á örfáum mínútum.

Andri Már Helgason, deildarstjóri vörustjórnunar

Guðmundur Örn Arnarsson, hugbúnaðarsérfræðingur


SALUR HI

15:35 - 16:00

Hér gefst gestum tækifæri til að spyrja fyrirlesara um þau viðfangsefni sem farið var yfir á Power Platform línunni.

Sigfús Jónasson, sölustjóri Power Platform og gervigreindar


16:00 - 17:00

Spjall og veitingar 🥂

Drykkir og léttar veitingar

Að ráðstefnu lokinni býður Advania til tengslamyndunar með léttum veitingum og drykkjum.

Setja í dagatal

Google CalendarOutlook