Samtal
Sjáðu til þess að starfsmannasamtöl fái þá athygli sem þau eiga skilið.
Samtal straumlínulagar ferilinn og hjálpar mannauðsfólki að hafa yfirsýn með hjálp sniðmáta og mælaborða.
Nú erum við að tala saman
Við vitum að samtöl milli starfsmanna og stjórnenda eru mikilvæg. Þau eru lykilþáttur í að starfsmenn viti til hvers er ætlast af þeim, hvort frammistaða sé eftir kröfum og til að hjálpa til við starfsþróun. Það er þó mjög einfalt að setja þau óvart aftarlega í forgangsröðina.
Samtal hjálpar starfsfólki að setja starfsmannasamtöl í forgang með einföldum og aðgengilegum lausnum. Mannauðsfólk getur útbúið sniðmát fyrir allar tegundir samtala sem stjórnendur og starfmenn geta nálgast á einfaldan hátt. Samtöl verða þannig ekki bara stöðluð, heldur er um leið auðvelt að fylgja eftir að þau eigi sér stað.
Stöðluð samtöl
Samtal gerir mannauðsfólki kleift að búa til sniðmát fyrir samtöl sem mæta þörfum stjórnenda og starfsfólks. Til dæmis fyrir
- Starfsmannasamtöl
- Launasamtöl
- Viðverusamtöl
- Starfslokasamtöl
Mannauður gerir þessi sniðmát aðgengileg inni í lausninni á hlaðborði stjórnandans þar sem hann getur valið hvaða starfsmann hann vill taka í samtal og tegund samtals.
Betri yfirsýn og sjálfbærni
- Stjórnandinn hefur yfirsýn yfir sitt starfsfólk og getur séð hvaða starfsmenn hafa farið í samtal, eru með samtal í undirbúningi, eða hvaða starfsmenn á eftir að bóka í samtal. Stjórnandi sem hefur valið samtal fyrir starfsmann getur síðan undirbúið sig.
- Starfsmaður hefur yfirsýn yfir sín fyrri samtöl og samtöl í vinnslu ásamt því að geta undirbúið sig fyrir næsta samtal.
- Mannauðsfólk getur séð hvaða starfsfólk hefur farið í samtal og getur unnið úr þeim upplýsingum til að tryggja aðgengi starfsfólks að samtölum og þannig stutt við starfsþróun.
Auðvelt aðgengi
Með því að bjóða upp á samtöl í vefviðmóti verður aðgengi að því að framkvæma t.d. starfsmannasamtöl, launasamtöl, starfslokasamtöl o.s.frv. mun einfaldara. Að sjálfsögðu er hægt að vinna með lausnina í öllum snjalltækjum.
Allir hlutar Samtals eru aðgengilegir á einfaldan hátt á einum stað og engin þörf er á að setja upp neinn hugbúnað.
Sniðið að þínu fyrirtæki
Verðskrá Samtals er miðuð við fjölda starfsmanna fyrirtækja.
0 - 200 starfsmenn
Verð á hvern notanda
0 - 50 starfsmenn | 259 kr. |
50 - 100 starfsmenn | 230 kr. |
100 - 150 starfsmenn | 205 kr. |
201 - 500 starfsmenn
Verð á hvern notanda
150 - 200 starfsmenn | 182 kr. |
200 - 300 starfsmenn | 162 kr. |
300 - 400 starfsmenn | 144 kr. |
501 - 1000 starfsmenn
Verð á hvern notanda
400 - 500 starfsmenn | 128 kr. |
500 - 700 starfsmenn | 114 kr. |
700 - 1000 starfsmenn | 101 kr. |
1001 - 2500+ starfsmenn
Verð á hvern notanda
1000 - 2500 starfsmenn | 96 kr. |
2500+ starfsmenn | 75 kr. |