Áreiðanleg upplýsingastjórnun er lykilatriði þegar kemur að rekstri fyrirtækja og nær yfir marga þætti. Við eigum lausnir sem hjálpa starfsfólki þínu að auka skilvirkni og ná meiri árangri.
Stjórnaðu upplýsingaflæðinu með skilvirku skjalakerfi
Þetta snýst ekki bara um að hafa hlutina í röð og reglu heldur að gera skjöl aðgengileg, einfalda samvinnu og tryggja gagnaöryggi með reglubundnum afritunum. Lausnirnar okkar einfalda samvinnu því notendur geta unnið samtímis í skjölum og aðgangsstýrt þeim svo einungis tilteknir aðilar hafi aðgang að þeim.
Hafðu samband við okkur og kynntu þér fjölbreytt úrval skjalavistunarlausna sem meðal annars styðja SharePoint, Office 365 og .NET tæknina frá Microsoft. Við bjóðum einnig vandaðar SharePoint viðbætur á borð við OnePlace, harmon.ie og Nintex Workflow.
Heildstæð upplýsingastjórnun með easyStart lausnum Advania
Við höfum þróað heildstætt safn sérhæfðra lausna sem kallast easyStart og hentar fyrirtækjum sem nota SharePoint. Hér er um að ræða tilbúnar lausnir, sem þýðir að innleiðing þeirra tekur skamma stund og í flestum tilfellum er ekki þörf á neinni aðlögun, þó auðvitað sé hægt að laga þær að sértækum þörfum viðskiptavina hverju sinni.
EasyStart lausnir Advania má innleiða sem eina heild eða hverja fyrir sig og viðskiptavinir okkar hafa notað þær til að halda utan um skjöl, gæðamál, samskipti við viðskiptavini, og innri vefi.
Helstu kostir:
- Vefkerfi aðgengilegt í gegnum vefvafra
- Öruggar aðgangsstýringar og úttgáfustýringar skjala
- Öflugar tengingar við Microsoft Office og Outlook
- Office vefforrit, hægt að vinna í Office skjölum án þess að hafa uppsett Office á tölvu notanda
easyStart lausnir Advania
easyQUALITY
Með easyQUALITY er leikur einn að halda utan um gæðahandbók fyrirtækisins og þú færð auðlesanlegt yfirlit yfir ábyrgðaraðila skjala, ný skjöl í handbók, skjöl til samþykktar og virk vinnuskjöl. Lausnin inniheldur eftirfarandi virkni:
- Skjalastjórnun
- Handbókarskjöl
- Aðgangsstýringar
- Rýni- og samþykkt skjala
Hægt er að kaupa viðbætur sem
- Auðvelda utanumhald framkvæmda og eftirfylgni gæða- og öryggisúttekta,
- Halda utan um þjálfun starfsmanna, sendir þeim áminningar um að kynna sér uppfærð skjöl í gæðahandbók og auðveldar alla yfirsýn yfir stöðu þjálfunar hjá starfsmönnum.
easyDOCUMENTS
Þessi lausn gerir notendum kleift að vinna saman í skjölum, deila þeim og stýra aðgangi að þeim eftir þörfum hverju sinni. Kerfið er jafnframt geymsla fyrir skjöl og fylgir með því fyrirfram skilgreiningar á efnisflokkum og lýsigögnum. Náðu tökum á gögnunum og notaðu easyDOCUMENTS til að lágmarka flækjustigið sem fylgir umsýslu þeirra.
easyINTRANET
Einkenni góðra innri vefa er einföld upplýsingaleit og gott aðgengi að upplýsingum. Með easyINTRANET er einfalt mál að byggja upp vandaðan innri vef sem gerir starfsmönnum kleift að nálgast skjöl, fréttir, viðburða- og afmælisdagatal, matseðilinn og fleira sem einkennir góða innri vefi.
easyCASES
Góð málastjórnun snýst um að halda rétt utan um verkefni og samskipti við viðskiptavini. Með easyCASES getur þú betur fylgst með stöðu mála og tryggt að þau séu leyst á tilsettum tíma með tilskyldum hætti. Það er einfalt að fela einstökum starfsmönnum ábyrgð á úrlausn mála, hengja skjöl á borð við tölvupóstsamskipti og verkefnalista við hvert mál, og allir notendur hafa skýrt yfirlit yfir stöðu mála og verkefna sýn.
easyCONTRACTS
Það er þægilegt að halda utan um samninga með easyCONTRACTS en lausnin gerir notendum kleift að setja ákveðin eigindi á hvern samning. Þannig geta notendur með einföldum hætti séð stöðu samninga, ábyrgðaraðila þeirra og fengið áminningu áður en einstakir samningar renna út. Notendur á yfirlit yfir nýjustu samninga og verkefni sem að þeim snúa. Hægt er að skilgreina aðgerðir og verkefni fyrir einstaka samninga og samþætta aðgerðir við Tasks í Microsoft Outlook.
easyTEAMS
Með easyTEAMS gefst starfsmönnum kostur á að stofna hópa- og verkefnasvæði eftir þörfum með fyrirfram skilgreindu sniði. Fá þá starfsmenn einsleit vinnusvæði til að vista sín verkefnagögn, til dæmis fundargerðir, kynningar, tölvupósta, myndir o.fl. easyTEAMS byggir á SharePoint sem gerir notendum kleift að vinna í skjölum á sama tíma, leita að gögnum og flokka þau eftir því sem við á.
easyEQUALPAY
easyEQUALPAY er tól til að auðvelda fyrirtækjum að innleiða jafnlaunakerfi og standast þannig ný lög um jaflaunavottun.
Viðskiptavinum býðst einnig að fá með lausninni tilbúinn skjalapakka sem inniheldur grunn að handbók s.s. stefnuskjöl, verklagsreglur og fleira sem snýr að jafnlaunavottun. Að auki fylgja þarfleg eyðublöð og sniðmát sem auðvelda alla vinnslu.
easyEQUALPAY og Avanti
Hægt er að panta til viðbótar við easyEQUALPAY lausnina 15 tíma í ráðgjöf frá Avanti-ráðgjöf til að aðlaga skjöl og klára innleiðingu á sem einfaldastan hátt. Ráðgjöfin hefur verið sérstaklega sniðin að innleiðingu kerfisins og með henni fylgja aukalega gögn sem geta aukið heildarvirði kerfisins.
GDPR Stjórnborð
GDPR stjórnborðið er tól til að halda utan um þær skráningar sem fyrirtæki þurfa að halda utan um vegna tilkomu nýju GDPR reglugerðarinnar.
Með stjórnborðinu öðlast þú betri yfirsýn yfir vinnslur og samninga á vegum fyrirtækisins. Auk þess er auðvelt að halda utan um úrbótaverkefni sem skapast í kjölfar frávika eða af öðrum ástæðum.
Lausnina er hægt að sníða þægilega að þörfum hvers fyrirtækis og einfalt er að útbúa skýrslur, form og verkefni fyrir ábyrgðarmenn.
Nintex auðveldar hönnun og notkun á verkferlum og formum í SharePoint og O365. Hönnun fer fram í einföldu grafísku notendaviðmóti án kóða. Nintex er auðvelt í notkun og gerir hverjum sem er kleift að hanna einföld en þó árangursrík verkferli.