Framkvæmdastjórn Advania. Frá vinstri: Sigrún Ámundadóttir, Sigríður Sía Þórðardóttir, Hafsteinn Guðmundsson, Hildur Einarsdóttir, Erna Björk Sigurgeirsdóttir og Auður Inga Einarsdóttir. Mynd: Advania/Jón Snær Ragnarsson

Fréttir - 24. apríl 2026

1,1 milljarður í hagnað á ári tækniumbreytinga

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.

Tekjur félagsins námu 18,3 milljörðum króna og hagnaðurinn var 1,1 milljarður eftir skatt. EBITDA nam ríflega 2,3 milljörðum og styrktist sérstaklega á síðari hluta árs samanborið við fyrra ár. Stjórn Advania á Íslandi leggur til að greiddur verði 900 milljóna króna arður til hluthafa í ár vegna rekstrarniðurstöðu síðasta árs.

Hildur Einarsdóttir tók við sem forstjóri Advania á Íslandi í mars á síðasta ári. Stefnumörkun félagsins var kynnt síðsumars og tók skipurit félagsins samhliða breytingum til að styðja við hana. Áhersla var lögð á áframhaldandi hagnýtingu upplýsingatæknilausna, netöryggismál og sókn á sviði gervigreindar.

„Árið 2025 var ár breytinga og framþróunar á sviði upplýsingatækni og það sýndi sig að sú djúpa þekking sérfræðinga Advania, hæfileikar til að hlaupa hratt og nýta tækniframfarir á öruggan hátt skila sér um leið í virði til viðskiptavina,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi.

Starfsmenn Advania á Íslandi eru um 550 talsins, en félagið er hluti af Advania samstæðunni og nýtur því ávinnings af styrk og stærð hennar og af þekkingu og reynslu þeirra rúmlega 5.500 sérfræðinga sem þar starfa.

Í framkvæmdastjórn Advania sitja Hildur Einarsdóttir forstjóri, Auður Inga Einarsdóttir framkvæmdastjóri Innviðalausna, Erna Björk Sigurgeirsdóttir framkvæmdastjóri Fjármála, mannauðs og samskipta, Hafsteinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna, Sigríður Sía Þórðardóttir framkvæmdastjóri Viðskiptalausna og Sigrún Ámundadóttir framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna.

Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group fyrir 2025 er nú komin út en þar er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.

Fleiri fréttir

Blogg
09.02.2016
Rétt notendahegðun er ávallt mikilvægasta öryggisvörnin.
Blogg
02.02.2016
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Blogg
25.01.2016
Þróunin í CRM er komin svo langt og möguleikarnir svo víðtækir að stjórnendur hljóta að spyrja sig hvort þeir séu að missa af þessari þróun og hleypa keppinautum fram úr sér.
Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.