Nýjasta nýtt - 14.12.2018
Advania býður nýja lausn á sviði viðskiptagreindar
TimeXtender hefur samið við Advania um að selja og þjónusta Discovery Hub® sem einfaldar fyrirtækjum að framkvæma greiningar á gögnum úr ólíkum gagnasöfnum.
Discovery Hub® er heildarlausn sem einfaldar fyrirtækjum að draga saman upplýsingar úr mörgum ólíkum gagnasöfnum og framkvæma greiningar á þeim. Með einföldu notendaviðmóti, sjálfvirkni og gervigreind gerir lausnin það mögulegt að flýta þróun og draga úr kostnaði við rekstur gagnamarkaða og vöruhúsa gagna. Lausnin er með innbyggðar tengingar við hin ýmsu upplýsinga- og viðskiptakerfi. Sjálfvirkni dregur úr þeim tíma sem það tekur að gera gögn aðgengileg og framkvæma greiningar á þeim, einfaldar samþættingu og tryggir gæði gagna á sama tíma. Sjálfvirk skjölun einfaldar yfirsýn yfir uppruna gagna. Discovery Hub® auðveldar stjórnendum, í umhverfi þar sem góð yfirsýn og hraði skipta máli, að taka ákvarðanir sem byggja á áreiðanlegum upplýsingum.
„Advania leggur sig fram við að skapa virði fyrir viðskiptavini sína með snjallri notkun upplýsingatækni. Við trúum því að Discovery Hub® hjálpi til við það og auðveldi fyrirtækjum að skapa virði úr ósamstæðum gögnum og upplýsingum,“ segir Kristinn Eiríksson, framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania.
„Við fögnum samstarfinu við stórt og öflugt fyrirtæki á borð við Advania. Það er okkar sameiginlega trú að Discovery Hub® hugbúnaðurinn mæti fjölbreyttum þörfum íslenskra fyrirtækja, meðal annars við að uppfylla nýja persónuverndarlöggjöf,“ segir Heine Krog Iverse framkvæmdastjóri TimeXtender.
Með samstarfi Advania og TimeXtender eykur Advania vöruframboð sitt á sviði viðskiptagreindar en hún verður sífellt mikilvægari í rekstri fyrirtækja á tímum stafrænnar umbreytingar.