Nýjasta nýtt - DD.02.YYYY

Advania býður skýjaþjónustu GreenQloud

Advania og GreenQloud hafa samið um að Advania bjóði viðskiptavinum sínum skýjalausnir GreenQloud í sjálfsafgreiðslu í gegnum viðmót og greiðslukerfi Advania.


Í þessu tölvuskýi geta fyrirtæki geta fengið aðgang að tölvukerfi í áskrift

Advania og GreenQloud hafa samið um að Advania bjóði viðskiptavinum sínum skýjalausnir GreenQloud í sjálfsafgreiðslu í gegnum viðmót og greiðslukerfi Advania. GreenQloud er fyrsta tölvuský heims sem er eingöngu knúið endurnýjanlegri orku. Í þessu tölvuskýi geta fyrirtæki fengið aðgang að tölvukerfi í áskrift. Þetta felur í sér auðveldan og hagkvæman aðgang fyrirtækja að tölvuþjónustu hverskonar án þess að þurfa að fjárfesta í búnaði. Tölvukerfi GreenQloud er að stórum hluta hýst í gagnaveri Advania.

Snjallar og umhverfisvænar lausnir

„Það er okkur sönn ánægja að vinna með vaxandi sprotafyrirtæki eins og GreenQloud en það fyrirtæki hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir snjallar og umhverfisvænar lausnir. Í gegnum þessa þjónustu gerum við viðskiptavinum okkar enn auðveldar að hagnýta öflug tölvukerfi á þeirra eigin forsendum eins og þeim hentar, hvar og hvenær sem er í veröldinni. Við sjáum fyrir okkur að þessi lausn henti sérstaklega fyrir ný fyrirtæki í hröðum vexti,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri rekstrarlausna Advania.

Fjölbreyttar skýjalausnir

“Samstarfið mun styrkja stöðu GreenQloud á íslenska markaðinum, í Skandinavíu og víðar ásamt því að gera Advania kleift að bjóða uppá fjölbreyttari skýjalausnir,“ segir Bala Kamallakharan, framkvæmdarstjóri GreenQloud.



Fleiri fréttir

Blogg
07.05.2026
Þessa dagana snýst umræða um gervigreind mikið um það hvaða störf eru að verða úrelt og hvar fyrirtæki geti mögulega skorið niður og sparað stöðugildi. Þó það sé sannarlega eitthvað sem er mikilvægt að vera með augun á, þá segir það bara hálfa söguna.
Fréttir
06.05.2026
Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Blogg
04.05.2026
Lemon Lin frá Yealink kom í heimsókn til okkar á dögunum til að kynna nýjustu heyrnartólin frá fyrirtækinu, Yealink BH78.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.