Nýjasta nýtt - 27. apríl 2017

Advania kaupir sænska upplýsingatæknifyrirtækið Caperio

Advania hefur gert kauptilboð í allt hlutafé sænska upplýsingatæknifyrirtækisins Caperio og munu kaupin styrkja Advania í sessi sem eitt af leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni á Norðurlöndum

Helstu atriði:

  • Styrkir stöðu Advania sem leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Norðurlöndum.
  • Viðskipti upp á 2 milljarða króna sem hafa mikil samlegðaráhrif fyrir Advania.
  • Velta Advania í Svíþjóð mun tvöfaldast við kaupin.
  • Viðskiptavinir Advania á Íslandi munu njóta hagstæðari innkaupa á vélbúnaði.

Advania hefur gert kauptilboð í allt hlutafé sænska upplýsingatæknifyrirtækisins Caperio. Þegar kaupin hafa gengið í gegn mun fyrirtækið verða hluti af starfsemi Advania í Svíþjóð. Kaupin á Caperio eru í samræmi við stefnu Advania um aukinn vöxt félagsins á Norðurlöndum. Kaupverðið nemur 158 milljónum sænskra króna eða um 2 milljörðum íslenskra króna.

„Kaupin á Caperio hafa gríðarlega mikil samlegðaráhrif inn í rekstur Advania sem munu styrkja okkur í sessi sem eitt af leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni á Norðurlöndum“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi. „Caperio hefur náð góðum árangri í sölu vélbúnaðar og hefur fyrirtækið verið í fararbroddi við að bjóða viðskiptavinum upp á fjölbreyttar fjármögnunarleiðir. Viðskiptavinir Advania á Íslandi munu njóta góðs af þessum kaupum í gegnum hagstæðari innkaup á vélbúnaði og hugbúnaðarsamningum. Við erum mjög spennt fyrir þessu og okkur hlakkar til að taka á móti öflugum hópi starfsmanna Caperio í okkar lið.“

Caperio var stofnað árið 2000 og er skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi. Helsti styrkur fyrirtækisins liggur í sölu tölvubúnaðar og hugbúnaðarleyfa en Caperio sinnir einnig rekstri upplýsingatæknikerfa og skýjalausna, og veitir upplýsingatækniráðgjöf. Það er mat Advania að í kaupunum felist mikil samlegðaráhrif sem muni skila sér í skilvirkari og hagkvæmari rekstri sem og betri og fjölbreyttari þjónustu til viðskiptavina. Kaupin munu styrkja stöðu Advania í Svíþjóð og stækka hóp viðskiptavina fyrirtækisins verulega. 

Hjá Caperio starfa um 120 starfsmenn í stærstu borgum Svíþjóðar. Heildartekjur félagsins árið 2016 voru 956 milljónir sænskra króna eða um 11,6 milljarðar íslenskra króna og var EBDITDA það ár 32,9 milljónir sænskra króna eða um 400 milljónir íslenskra króna. Velta Advania í Svíþjóð á síðasta ári var um 10,5 milljarðar íslenskra króna og það er því ljóst að við kaupin munu tekjur félagsins í Svíþjóð tvöfaldast.

Hjá Advania starfa um 1.000 starfsmenn á 20 starfsstöðvum á Íslandi, í Svíþjóð, í Danmörku og í Noregi. Advania er eitt af stærstu fyrirtækjum Norðurlanda á sviði upplýsingatækni. Beringer Finance var ráðgjafi Advania við kaupin.

Tilkynning um viðskiptin til Nasdaq:

Nánari upplýsingar veitir:
Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi: aegir@advania.is / 864-9841

 

Fleiri fréttir

Fréttir
31.08.2026
Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.
Blogg
24.08.2026
Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu.  En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.
Blogg
18.06.2026
Ársskýrsla Advania kom út á dögunum og þar er fjallað um sjálfbærni og fjárhag á sama grundvelli, þar sem þessir þættir eru metnir til jafns hjá samstæðunni allri. Sjálfbærni er þannig orðin mun stærri og dýpri hluti af rekstri Advania en áður og sífellt meira nýtt sem virkur hluti af stefnumótun, áhættustýringu og verðmætasköpun. Megináherslur skýrslunnar verða gefnar út á næstu vikum í formi styttri blogga.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.