Nýjasta nýtt - 08.02.2012

Advania og UT-messan 2012

Advania er þátttakandi í UT-messunni 2012 sem haldin verður fimmtudaginn 9. febrúar

Advania er þátttakandi í UT-messunni 2012, sem haldin verður á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar. Þessi viðburður er skipulagður af Skýrslutæknifélagi Íslands og skiptist í metnaðarfulla ráðstefnu, sýningu flestra UT-fyrirtækja landsins og fjölbreytta örfyrirlestra um allt milli himins og jarðar.

Tilgangur UT-messunnar er að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar og áhrif hennar á einstaklinga, fyrirtæki og íslenskt samfélag. Markmiðið er að sjá marktæka fjölgun nemenda sem velja sér tæknigreinar sem svið í háskólum landsins. Einnig viljum við tengja upplýsingatæknina betur við skólastarf og atvinnulíf og vekja áhuga almennings á upplýsingatækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum daglegs lífs. 

Að UT-messunni stendur Skýrslutæknifélagið (Ský) í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Microsoft Íslandi og Samtök iðnaðarins (SUT, IGI, SSP).
Allt um UT-messuna er hérna

Ráðstefnan inniheldur þrjár þemalínur og þar eru í boði áhugaverðir fyrirlestrar erlendra og innlendra sérfræðinga. Línurnar þrjár eru fyrir stjórnendur, UT-sérfræðinga í rekstri og hugbúnaðarþróunarfólk.

Smelltu hérna til að kíkja á dagskrá ráðstefnunnar:

Á sýningunni verða öll helstu UT-fyrirtæki landsins með sýningarbása. Opið kl. 8:30 til 21:00. Ókeypis er inná sýningarsvæðið og einnig verða örkynningar í gangi allan seinnipartinn og fram á kvöld fyrir almenning. Tilvalið að skella sér með fjölskylduna einn seinnipart og upplifa UT á Íslandi. Næg bílastæði og auðvelt aðgengi fyrir alla.

Smelltu hérna til að skoða listann yfir sýnendur:

Frá kl. 16:00 til 21:00 er almenningi boðið á örkynningar á sýningarsvæði UTmessunnar. Þessir fyrirlestrar eru ekki nema 10-15 mínútur að lengd og henta öllu áhugafólki um upplýsingatækni.

Smelltu hérna til að forvitnast nánar um dagskrá örkynninga:

Fleiri fréttir

Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.