Nýjasta nýtt - 21.7.2016 14:13:00
Advania ræður yfir 90 nýja starfsmenn
Advania hefur ráðið til sín yfir 90 nýja starfsmenn það sem af er ári. Flestir sem ráðnir hafa verið á árinu eru tölvunarfræðingar, verkfræðingar eða forritarar sem vinna við hugbúnaðarþróun.
Advania hefur ráðið til sín yfir 90 nýja starfsmenn það sem af er ári. Flestir sem ráðnir hafa verið á árinu eru tölvunarfræðingar, verkfræðingar eða forritarar sem vinna við hugbúnaðarþróun. Einnig hefur verið ráðið í önnur störf eins og ráðgjöf, þjónustu við viðskiptavini og verkefnastjórnun.
„ Fyrsti helmingur ársins hefur gengið vel og verkefnastaða okkar er góð. Við erum virkilega ánægð með þann nýja hæfileikaríka liðsauka sem okkur hefur borist á árinu. Við erum alltaf að leita að góðu fólki sem tryggir að við bjóðum viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og bestu lausnina“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania.