Nýjasta nýtt - DD.04.YYYY

Advania smíðar vöruhús Íbúðalánasjóðs

Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa á síðasta ári fyrir Íbúðalánasjóð á vöruhúsi gagna og hugbúnaði á sviði viðskiptagreindar var gengið til samninga við Advania og samstarfsaðila fyrirtækisins, SAP Business Objects.


Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa á síðasta ári fyrir Íbúðalánasjóð á vöruhúsi gagna og hugbúnaði á sviði viðskiptagreindar var gengið til samninga við Advania og samstarfsaðila fyrirtækisins, SAP Business Objects. Verkefnið er nú hafið og áætluð verklok eru á haustdögum 2013.

Betri yfirsýn

„Þetta er umfangsmikið verkefni, en því miðar vel áfram. Markmið þess er að vinnsla gagna verði miðlæg og tryggi þannig örugga og samræmda upplýsingagjöf Íbúðalánasjóðs. Uppbygging vöruhússins mun auka hagræði í allri gagnavinnslu og vinnslu upplýsinga fyrir Fjármálaeftirlit og aðra eftirlitsaðila. Með vöruhúsinu mun upplýsingaflæði til stjórnenda batna til muna, sem styður við betri og hraðari ákvörðunartöku. Allar greiningar á lánasafni Íbúðalánasjóðs, sem er stærsta lánasafn landsins, munu verða hraðvirkari og nákvæmari, þannig að stjórnendur og sérfræðingar fá aukinn  tíma í aðgerðir. Samhliða verða gögn úr mismunandi kerfum og grunnum sjóðsins gerð aðgengileg fyrir stjórnendur, starfsmenn og ytri aðila, eftir því sem þörf krefur,“ segir Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.

Vandað til verka

„Íbúðalánasjóður og Ríkiskaup vönduðu mjög til verka við undirbúning þessa útboðs og ráðgjafarfyrirtæki þeirra í verkefninu er Capacent. Það var þess vegna ákveðinn gæðastimpill á lausnir okkar á sviði viðskiptagreindar að hreppa verkefnið. Advania hefur um árabil unnið markvisst að uppbyggingu öflugs viðskiptagreindarteymis, sem meðal annars veitir ráðgjöf við stefnumótun og markmiðasetningu varðandi vöruhús gagna og viðskiptagreind,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

Spennandi verkefni

„Viðskiptagreind snýst um að breyta gögnum í verðmætar upplýsingar. Þessar upplýsingar nýtast svo sem grundvöllur ákvarðanatöku stjórnenda fyrirtækja og annars starfsfólks. Lausnirnar frá SAP BusinessObjects mynda heildstætt umhverfi fyrir viðskiptagreind, allt frá samhæfingu gagna til áætlanagerðar og mælaborðs fyrir stjórnendur og þetta metnaðarfulla verkefni Íbúðalánasjóðs er ákaflega spennandi samstarfsverkefni,“ segir Sigríður Þórðardóttir, forstöðumaður viðskiptagreindar hjá Advania.

Fleiri fréttir

Blogg
12.05.2026
Advania og Jabra frumsýna saman í dag PanaCast U30, glænýjan AllInOne búnað sem færir fyrsta flokks fundaupplifun inn í minnstu fundarherbergin. Þetta er nákvæmlega sá búnaður sem íslensk fyrirtæki hafa verið að bíða eftir og verðið kemur skemmtilega á óvart.
Blogg
07.05.2026
Þessa dagana snýst umræða um gervigreind mikið um það hvaða störf eru að verða úrelt og hvar fyrirtæki geti mögulega skorið niður og sparað stöðugildi. Þó það sé sannarlega eitthvað sem er mikilvægt að vera með augun á, þá segir það bara hálfa söguna.
Fréttir
06.05.2026
Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.