Nýjasta nýtt - 25.02.2013

Advania er tilnefnt til tveggja auglýsingaverðlauna

Ímark, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við SÍA hafa tilnefnt athyglisverðustu auglýsingar ársins. Advania er tilnefnt í tveimur flokkum.


Advania tilnefnd í tveimur flokkum

Ímark, félag íslensks markaðsfólks, í samráði við SÍA (Samtök íslenskra auglýsingastofa) hafa tilnefnt athyglisverðustu auglýsingar ársins. Advania er tilnefnt í tveimur flokkum:

  • Ásýnd fyrirtækis
  • Umhverfisauglýsingar

Mikill heiður og viðurkenninga á okkar störfum

„Með tilnefningunum er okkur sýndur mikill heiður og viðurkenning á störfum okkar. Fyrir það erum við bæði þakklát og stolt. Árið 2012 var annasamt þar sem við lögðum niður góð og gild fyrirtækjanöfn og sameinuðumst  undir einu heiti og einni ásýnd. Það var stórt verkefni sem er síður en svo lokið. Það að fá tilnefninguna í þeim flokki er sérstaklega ánægjulegt“, segir Elísabet Sveinsdóttir, markaðsstjóri Advania.


Íslenski markaðsdagurinn og verðlaunaafhendingin er 1. mars

Verðlaunaafhendingin fer fram á Íslenska markaðsdeginum sem í ár verður haldinn 1. mars næstkomandi þá kemur í ljós hverjir hneppa Lúðurinn. Nánar um málið á www.imark.is 


Myndband  um ásýnd Advania

Ásýnd Advania tilnefnd til ÍMARK verðlauna 2012


Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.