Nýjasta nýtt - 7.12.2016 09:27:00

Advania viðurkenndur söluaðili á Chromebook

Viðskiptavinir geta nú keypt Chromebook fartölvur í verslunum Advania

Guðmundur Steinar Zebitz, vörustjóri notendalausna og Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi tóku á móti Chromebook tölvunum.

 

Chromebook fartölvur er nú hægt að kaupa hjá Advania en fyrirtækið var nýlega samþykkt af Google sem viðurkenndur dreifingar- og söluaðili á Íslandi. Til að fá slíka heimild þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar kröfur af hálfu Google en auk þeirra verður starfssvæði fyrirtækisins að vera á lista yfir lönd sem hafa heimild til að selja tæknibúnað fyrirtækisins. Íslendingar geta nú nálgast einfaldar en öflugar Chromebook fartölvur frá Dell í öllum verslunum Advania.

Það sem gerir Chromebook vélarnar ólíkar hefðbundnum fartölvum er að þær keyra á skýjalausnum sem þýðir að öll vinnsla og geymsla gagna fer fram í skýjaumhverfi. Google hefur sérhæft sig í smíði skýjalausna og er G Suite heildstæð hugbúnaðarlausn fyrir fyrirtæki en auk þess er hægt að fá útgáfu sem er sérsniðin að þörfum menntastofnana, G Suite for Education.

Advania er Google partner og býður nú heildarlausnir á sviði Google lausna.

„Þetta er mikill fengur fyrir innlendan markað og ljóst að margir aðilar munu njóta góðs af því að hafa breiðara vöruúrval þegar kemur að fartölvum“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. „Chromebook tölvur henta sérstaklega þeim sem vilja ódýrar fartölvur fyrir vinnslu í skýjaumhverfi. Þær hafa verið sérstaklega vinsælar hjá skóla- og menntastofnunum um heim allan vegna þess hve einfaldar og notendavænar þær eru. Við höfum þegar afgreitt Árskóla á Sauðárkróki um slíkar tölvur sem voru framleiddar af Dell og erum afar ánægð að heyra um árangurinn sem þar hefur náðst með snjallri beitingu á tækni“.

Fleiri fréttir

Blogg
13.11.2025
Dell hefur kynnt nýjar fartölvulínur sem eru hannaðar til að mæta ólíkum þörfum á vinnustöðum. Til að einfalda valið eru þrír meginflokkar: Dell Pro, Dell Pro Premium og Dell Pro Max. Hver lína er sérsniðin að mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, og hjálpar starfsfólkinu að vera Pro í sinni vinnu.
Fréttir
12.11.2025
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins á Íslandi árið 2025 (e. Partner of the Year). Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania.
Fréttir
01.11.2025
Það var gleðistund þegar Advania afhenti Vísindagörðum fyrstu NVIDIA DGX Spark ofurtölvuna. Mikil eftirvænting hefur ríkt hér á landi enda er um að ræða nýjustu og minnstu ofurtölvu tæknirisans NVIDIA, sannkallaða byltingu í gervigreindarvinnslu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.