Nýjasta nýtt - 29.08.2013

Afkoma Advania á fyrstu sex mánuðum ársins 2013

Viðsnúningur í Noregi, áfram vöxtur á Íslandi og í Svíþjóð

Hagnaður Advania samstæðunnar nam 940 milljónum króna fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) á fyrri helmingi ársins samanborið við 48 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Heildartekjur fyrstu sex mánuðina námu 14.178 milljónum króna samanborið við 12.954 milljónir á fyrri helmingi síðasta árs og jukust um 9,4%. Þegar tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða og skatta nemur hagnaður af rekstri samstæðunnar á fyrri helmingi ársins 247 milljónum króna samanborið við 580 milljóna króna tap á sama tímabili árið 2012.  Hjá Advania starfa um 1.100 starfsmenn í 20 starfsstöðvum á Íslandi, í Svíþjóð og í Noregi.

Viðsnúningur í Noregi

Mikill viðsnúningur hefur orðið hjá Advania í Noregi eftir mjög erfiðan rekstur á síðasta ári. Hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 469 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 486 milljóna króna tap fyrir vexti, skatta og afskriftir á sama tímabili í fyrra. Umskiptin má m.a. rekja til 540 milljóna króna sölu á hugbúnaðarréttindum til stórs viðskiptavinar á tímabilinu, umfangsmikilla skipulagsbreytinga um síðustu áramót og hagræðingar í rekstri. 

Um 86% af veltu Advania á uppgjörstímabilinu myndaðist á Íslandi og í Svíþjóð. Reksturinn í þessum löndum hefur verið í góðu jafnvægi og veltuaukning stöðug. Þannig jókst veltan á Íslandi um 12% frá fyrri hluta árs 2012 og var 6.098 milljónir kr. Í Svíþjóð jókst veltan um 6,9% og var 5.692 milljónir kr. 

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir afkomu Advania í Noregi hafa haft mun meiri áhrif á niðurstöður samstæðunnar en umfang starfseminnar gefur tilefni til.  „Rekstri í Noregi hefur verið snúið til betri vegar með markvissum aðgerðum. Jafnframt hefur hlutfall erlendra tekna af veltu á Íslandi vaxið talsvert á milli ára. Þetta skapar aukna breidd í tekjumynstri Advania á Íslandi. Í því felast tækifæri til vaxtar á þröngum heimamarkaði en rekstrarumhverfi í greininni hefur af ýmsum ástæðum verið erfitt á síðustu árum. Við getum því verið nokkuð sátt við afkomuna.“


Um Advania

Advania á Íslandi sinnir upplýsingatækni með samþættum heildarlausnum fyrir atvinnulífið og neytendur á sviði hug- og vélbúnaðar, rekur fjölbreytta hýsingu og gagnaver auk víðtækrar rekstrarþjónustu. Advania er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra fyrirtækja í upplýsingatækni. Þar má nefna Dell, Cisco, EMC, IBM, Microsoft, NCR, Oracle, SAP, Symantec, HP og Xerox.

Fleiri fréttir

Blogg
22.04.2026
Á dögunum naut Advania þeirrar ánægju að fá í heimsókn Jabra snillingana Johnny Sønderby Poulsen og Rune Nørholm Møller‑Madsen. Heimsóknin var liður í nánu samstarfi Jabra og Advania og hafði það að markmiði að kynna nýjustu vörur og lausnir Jabra fyrir íslenskum neytendum. Skoðuðum við þá sérstaklega heyrnartól og fjarfundarlausnir.
Blogg
20.04.2026
Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.
Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.