Nýjasta nýtt - 24.10.2018 14:12:00

Auðvelda atvinnulausum að fá starf

Advania hefur verið falið að smíða nýjan vef um stóran hluta þjónustu Vinnumálastofnunar sem á að spara atvinnulausum sporin, flýta afgreiðslu atvinnuleysisbóta og draga úr tímafrekri pappírsvinnu hjá starfsfólki.

Advania hefur verið falið að smíða nýja vef um stóran hluta þjónustu Vinnumálastofnunar sem meðal annars á að spara atvinnulausum sporin, flýta afgreiðslu atvinnuleysisbóta og draga úr tímafrekri pappírsvinnu hjá starfsfólki.

Markmið með nýja vefnum er að efla og flýta þjónustu við viðskiptavini. Þar verður hægt að sækja um atvinnuleysisbætur og fylgjast með afgreiðsluferlinu.
Á nýja vefnum geta atvinnulausir afhent og nálgast upplýsingar á rafrænan hátt, óháð búsetu, og þurfa ekki lengur að fara milli stofnana til að útvega gögn fyrir Vinnumálastofnun.

Vefurinn verður líka vinnumiðlun sem miðar að því að auðvelda atvinnulausum að fá störf við hæfi. Þar geta atvinnurekendur auglýst laus störf.

Að mati Margrétar Kr. Gunnarsdóttur sviðsstjóra upplýsingatækni- og rannsóknarsviðs hjá Vinnumálastofnun, dregur nýji vefurinn úr handvirkum verkferlum hjá starfsfólki. Til dæmis sparast heilmikill tími við innslátt á upplýsingum og starfsfólk þarf ekki lengur að eyða tíma í að skanna pappíra. Með aukinni sjálfvirkni og einfaldari verkferlum næst hagræðing og aukið eftirlit með fjármunum hins opinbera.

Nýja kerfið hefur hlotið nafnið Galdur og leysir af hólmi kerfi sem Vinnumálastofnun hefur notað í 25 ár. Þó mikil vinna hafi farið í umbætur á gamla kerfinu er ljóst að því eru verulegar takmarkanir settar. Gert er ráð fyrir að nýji vefurinn bjóði uppá auðveldara notendaviðmót sem geri samkipti við Vinnumálastofnun greiðari.

Advania varð hlutskarpast í útboði Ríkiskaupa um verkið.


Fleiri fréttir

Blogg
05.03.2026
Jabra hefur kynnt til leiks Evolve 3 seríuna. Glænýja kynslóð heyrnartóla sem sameinar hágæða hljóð, smekklega hönnun og háþróaða tækni fyrir bæði vinnu og afþreyingu. Tvær tegundir eru á leiðinni til Advania: Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (ofan á eyru), og báðar sporta nýrri nálgun á hönnun og virkni.
Fréttir
25.02.2026
Advania hefur fest kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv, ört vaxandi félagi sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Evolv hefur þróað og innleitt lausnir sem nýta stafrænt vinnuafl til að auka skilvirkni og gæði og hefur frá stofnun þess árið 2020 þjónustað fjölda fyrirtækja og stofnana, þvert á starfssvið.
Fréttir
24.02.2026
„Helstu kostirnir við H3 eru auðvitað að það er mjög dýnamískt þegar kemur að halda utan um allt sem snýr að mannauðsmálum og því sem snertir starfsmanninn í heild, frá launum eða frá ráðningu yfir í starfslok,“ segir Kristján Þór Magnússon, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis í Mosfellsbæ.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.