Nýjasta nýtt - 21.03.2012

Ferðafélag Íslands semur við Advania

Ferðafélag Íslands hefur undirritað samning við Advania um innleiðingu á ÓPUSallt.

Ferðafélag Íslands hefur undirritað samning við Advania um innleiðingu á viðskiptalausninni ÓPUSallt.

„Ferðafélagið er meðal stærstu og öflugustu félagasamtaka í landinu og ákaflega metnaðarfullt í sinni starfsemi. Við höfum átt farsælt samstarf við félagið um langt árabil og það er grundvöllurinn að þessari nýju innleiðingu á nútímalegri viðskiptalausn," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.


                                           Það hentar Ferðafélagi Íslands afskaplega vel að eiga í langtímastarfi við trausta birga, sem veita okkur góða og skjóta þjónustu á hagkvæmu verði. Þannig getum við einbeitt okkur að kjarnastarfsemi félagsins og verið áhyggjulaus um ótengda þætti, líkt og tækniumhverfi okkar, segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins. 
 

ÓPUSallt

„Viðskiptalausnin ÓPUSallt er í notkun hjá hundruðum íslenskra fyrirtækja í öllum atvinnugreinum. ÓPUSallt inniheldur einingar fyrir innflutning, dreifingu, framleiðslu, verkbókhald, bókhaldsþjónustu eða handtölvulausnir. Vefþjónustukostir ÓPUSallt eru þróaðir með Microsoft.NET-tækni og eru hentugir fyrir hnökralaus rafræn samskipti við til dæmis birgja, viðskiptavini, banka og tollayfirvöld. Ferðafélagið hefur um árabil notað fjárhagskerfið TOK+ og uppfærir nú í ÓPUSallt á hagkvæman og fljótlegan hátt,“ segir Davíð Hjaltested hjá Advania.

Microsoft uppfærsla og Dell PowerEdge T110 netþjónn

Þess má geta að í tengslum við þessa innleiðingu á viðskiptalausninni ÓPUSallt réðist Ferðafélagið í viðmikla uppfærslu á Microsoft-skrifstofuhugbúnaði félagsins og tengdum leyfum fyrir tæknlega grunnviði. Félagið fjárfesti einnig í Dell PowerEdge T110-netþjóni, sem keyrir ÓPUSallt-viðskiptalausnina. Karl Jóhann Gunnarsson, söluráðgjafi hjá Advania, segir félagið þannig vel í stakk búið í tæknilegu tilliti. "Ferðafélagið er framsækinn og kröfuharður viðskiptavinur og það er skemmtilegt viðfangsefni að veita þeim fyrsta flokks þjónustu," segir Karl Jóhann. 

Ferðafélag Íslands

Ferðafélag Íslands var stofnað árið 1927. Félagið er áhugamannafélag með 7 þúsund meðlimi og tilgangur þess er að stuðla að ferðalögum um Ísland og greiða fyrir þeim. Innan vébanda Ferðafélagsins starfa 15 deildir víða um landið. Deildirnar eiga og reka skála og halda úti skipulögðum ferðum fyrir ferðafólk allan ársins hring.

Fleiri fréttir

Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.