Nýjasta nýtt - 13. september 2017

Gísli Kr. ráðinn verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania

Gísli Kr. hefur verið ráðinn verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania en í starfinu felst umsjón með vöruþróun sem miðar að því að gera vörur og þjónustur fyrirtækisins aðgengilegar í Markaðstorgi Advania, sjálfsafgreiðslulausn sem færir viðskiptavinum betri þjónustu og yfirsýn yfir skýjaþjónustur og -áskriftir sínar.

Gísli Kr. hefur verið ráðinn verkefna- og vörustjóri skýjalausna hjá Advania en í starfinu felst umsjón með vöruþróun sem miðar að því að gera vörur og þjónustur fyrirtækisins aðgengilegar í Markaðstorgi Advania, sjálfsafgreiðslulausn sem færir viðskiptavinum betri þjónustu og yfirsýn yfir skýjaþjónustur og -áskriftir sínar.

„Við erum mjög ánægð að hafa fengið Gísla í lið með okkur við að gera Markaðstorg Advania enn öflugra“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi. „Hér um að ræða framúrstefnulega lausn sem mætir kröfum viðskiptavina okkar um aukna sjálfsafgreiðslu og munu hæfileikar Gísla án nokkurs vafa nýtast vel í þessari vegferð okkar.“

Markaðstorg Advania er vettvangur sem gerir kerfisstjórum og umsjónarmönnum upplýsingatæknimála kleift að afgreiða sig, á einum stað, um ólíkar skýjaþjónustur og halda utan um áskriftir starfsfólks og réttindi. Í lausninni er mikið hagræði fólgið en meðal annars fá fyrirtæki einungis einn reikning fyrir öllum áskriftum í stað margra reikninga frá ólíkum þjónustuaðilum.

“Ég er gríðarlega ánægður að vera kominn til liðs við Advania og er spenntur að takast á við þær spennandi áskoranir sem hafa verið lagðar fyrir mig” segir Gísli. “Það eru gríðarlega spennandi tímar framundan og megin áhersla okkar er að bæta þjónustuferla enn frekar og veita viðskiptavinum tól til að besta sinn UT rekstur.” 

Gísli er einn stofnenda skýjatæknifyrirtækisins Greenqloud sem nýverið var keypt af NetApp. Hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs félagsins en hefur einnig starfað sem upplýsingatækni- og viðskiptaþróunarráðgjafi. Hann er kvæntur Bryndísi Gyðu Michelsen, laganema, og eiga þau saman einn son en Gísli á einn son úr fyrra sambandi.

Fleiri fréttir

Fréttir
31.08.2026
Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.
Blogg
24.08.2026
Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu.  En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.
Blogg
18.06.2026
Ársskýrsla Advania kom út á dögunum og þar er fjallað um sjálfbærni og fjárhag á sama grundvelli, þar sem þessir þættir eru metnir til jafns hjá samstæðunni allri. Sjálfbærni er þannig orðin mun stærri og dýpri hluti af rekstri Advania en áður og sífellt meira nýtt sem virkur hluti af stefnumótun, áhættustýringu og verðmætasköpun. Megináherslur skýrslunnar verða gefnar út á næstu vikum í formi styttri blogga.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.