Fréttir - 6. janúar 2020

Hluti af starfsemi Advania í Noregi seldur

Danska upplýsingatæknifyrirtækið Columbus hefur keypt hluta af starfsemi Advania í Noregi. Salan er liður í umfangsmikilli stefnubreytingu hjá Advania í Noregi og aukinni áherslu fyrirtækisins á rekstrarþjónustu og vélbúnaðarsölu.


Danska upplýsingatæknifyrirtækið Columbus hefur keypt hluta af starfsemi Advania í Noregi. Salan er liður í umfangsmikilli stefnubreytingu hjá Advania í Noregi og aukinni áherslu fyrirtækisins á rekstrarþjónustu og vélbúnaðarsölu.

Columbus er öflugt upplýsingatæknifyrirtæki í Danmörku og umsvifamikið meðal annars í ráðgjöf og þjónustu á viðskiptalausnum.

Advania hefur um nokkurt skeið starfað sem undirverktaki Colombus í einu stærsta ERP-verkefni í Evrópu um þessar mundir, fyrir Felleskjøpet í Noregi. Fyrirtækin þekkja því vel til hvors annars og eftir mikla yfirlegu var það ákvörðun stjórnar Advania að bjóða Colombus að kaupa þennan hluta starfsemi okkar í Noregi. Gengið var frá samningum þess efnis nú um helgina og starfsfólki tilkynnt þetta í dag.

„Kaup Advania í Noregi á fyrirtækjunum Stepper og Itello,á liðnu ári, voru afar vel heppnuð viðskipti. Í kjölfarið er það stefna okkar þar í landi að byggja enn frekar undir þá starfsemi. Við leggjum því höfuðáherslu á rekstrarþjónustu og sölu vélbúnaðar og drögum okkur út úr viðskiptalausnaráðgjöf,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

Með sölunni bætast 45 starfsmenn Advania í hóp 2000 starfsmanna Columbus.

Viðskiptin eru liður í sókn Advania í Noregi og viðbragð við breyttum markaðsaðstæðum þar í landi. Þau hafa engin áhrif á starfsemi Advania á Íslandi.

Fleiri fréttir

Blogg
21.01.2014
Á milli áranna 2011 til 2012 á sér stað risastökk í fjölda gæðavottaðra fyrirtækja hér á landi.
Blogg
15.01.2014
Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.
Blogg
09.01.2014
Fyrirtæki byggja almennt velgengni sína á ánægju viðskiptavina sinna með því að veita réttu þjónustuna með réttum hætti á réttum tíma.
Blogg
31.12.2013
Það er vandi að spá, sérstaklega um framtíðina. Sérfræðingar greiningafyrirtækisins Gartner láta það ekki aftra sér.
Blogg
10.12.2013
Microsoft leggur nú áherslu á að fyrirtæki geti uppfært Microsoft Dynamics NAV hratt og örugglega.
Blogg
25.11.2013
Við hjá BN notum app til að skrár úttektir á íbúðum.
Blogg
20.11.2013
Vinnumálastofnun (VMST) hefur opnað nýjan endurbættan þjónustu- og skráningarvef sem ber heitið Mínar síður.
Blogg
13.11.2013
Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað að eiga nýjan og fínan bíl en keyra hann á gömlum og slitnum dekkjum.
Blogg
06.11.2013
Ráðgjafafyrirtækið Gartner telur að fjórir kraftar muni hafa hvað mest áhrif á þróun upplýsingatækni í næstu framtíð; Cloud, Big Data, Mobile og Social.
Blogg
30.10.2013
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Blogg
23.10.2013
Til að ná sem bestum árangri verða stjórnendur og aðrir starfsmenn ávallt að vera með puttann á púlsinum.
Blogg
15.10.2013
Í nýrri útgáfu af TOK bókhaldskerfinu geta notendur sent og móttekið pappírslausa (rafræna) reikninga og sparað sér bæði tíma og peninga.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.