Nýjasta nýtt - 15.3.2018 13:19:00

Met í stórum vefverslunum hjá Advania

Aldrei hafa fleiri stórar og flóknar vefverslanir verið í smíðum hjá veflausnateymi Advania á Íslandi.

Aldrei hafa fleiri stórar og flóknar vefverslanir verið í smíðum hjá veflausnateymi Advania á Íslandi.

Sprenging í netverslun hefur gert það að verkum að rótgróin fyrirtæki hafa endurskoðað viðskiptahætti sína til að geta boðið vörur og þjónustu á netinu. Veflausnateymi Advania á Íslandi hefur mikla reynslu af því að leiða fyrirtæki í gegnum ferlið. Teymið hefur aldrei haft jafn stórar og umfangsmiklar vefverslanir í smíðum. Advania greinir þarfir fyrirtækja og smíðar vefverslanir sem henta starfsemi þeirra. Sérhæfing veflausnateymisins eru vefverslanir sem tengjast bakendakerfi svo sem bókhalds- og birgðakerfi, og eru samþættar rekstri fyrirtækjanna.

„Til að færa viðskiptin á netið er ekki nóg að smíða vefverslun. Fyrirtækjum mun mistakast ef þau halda að netviðskipti snúist bara um að opna sætan vef. Það er að sjálfsögðu hluti af vegferðinni en svo þarf að hlúa að vefversluninni og ferlunum sem fylgja. Notendaupplifun á vefnum skiptir miklu máli til þess að geta lokað viðskiptum. Myndirnar af vöruúrvalinu verða að vera góðar og viðmótið þægilegt. Verslunin þarf að gefa greinargóðar upplýsingar um hverja vöru og það þarf að vera skýrt hvernig hægt er að skila henni. Svo þarf að kynna vefverslunina og uppfæra reglulega. Við verðum vör við að fólk vanmetur kraftana og vinnustundirnar sem fara í að viðhalda öflugri vefverslun,“ segir Sigrún Eva Ármannsdóttir, forstöðumaður veflausna Advania.

Hún bendir á að það reynist stórum fyrirtækjum stundum flókið að koma upp vefverslun, ef hún á að vera sniðin að núverandi ferlum. „Fyrirtækin gætu þurft að breyta ferlum sínum til að selja vöru á netinu með skilvirkum hætti. Rýna þarf í hvernig hægt er að afhenda vörur fljótt og haga skilmálum. Hvort vefverslun eigi að hafa sinn eigin lager eða nýta sama lager og hin hefðbundna verslun. Hvort selja eigi sömu vörur á netinu og í versluninni. Horfa þarf í margar breytur hjá fyrirtækjum í fjölþættum rekstri og við tökum þátt í öllu greiningarferlinu. Það er ekkert eitt rétt svar við þessum spurningum. Við erum auðvitað sjálf með stóra vefverslun sem hefur verið áskorun að koma á laggirnar. Það hefur hjálpað okkur að skilja betur þarfir viðskiptavina okkar,“ segir Sigrún Eva.

Verslun á netinu hefur margfaldast á öllum Norðurlöndum undanfarin ár. Á Íslandi gefa kannanir Gallup til kynna að um 70% þjóðarinnar hafi verslað á netinu undanfarna 12 mánuði. Póstsendingar til landsins hafa aukist um 60% á einu ári sem skýrist af aukinni netverslun. Viðskipti á netinu hafa fest sig í sessi sem mikilvægur verslunarmáti og leið til að afla upplýsinga um vöruframboð.

„Fyrir nokkrum árum var sagt að ef fyrirtæki væri ekki sýnilegt á netinu, þá væri það ekki til í hugum fólks. Nú er talað um að ef varan þín er ekki sýnileg á netinu, þá heldur fólk að hún sé ekki til hjá þér og kaupir hana annarstaðar,“ segir Sigrún Eva.

Fleiri fréttir

Blogg
26.06.2025
Yealink hefur kynnt til leiks nýja vörulínu sem er væntanleg til landsins nú í júlí og nýtir nýjustu tækni í gervigreind. Með nýju MeetingBoard Pro línunni og öðrum nýjungum frá Yealink tekur þú fundarherbergið þitt og fundarupplifunina á næsta stig.
Fréttir
11.06.2025
Advania vinnur að því ásamt NVIDIA að setja upp séríslenskt gervigreindarský, þjónustu sem tryggir íslensku atvinnulífi aðgengi að nauðsynlegu reikniafli til þess að knýja áfram aukna eftirspurn eftir gervigreindarvinnslum. Hérlent gervigreindarský takmarkar nauðsyn mikilla fjárfestinga fyrirtækja og stofnana á fyrstu stigum við innleiðingu og nýtingu gervigreindar, ásamt því að öryggi gagna verður að fullu tryggt.
Fréttir
28.05.2025
Advania hlaut í dag Sjálfbærniásinn 2025 í flokki upplýsingatæknifyrirtækja á Íslandi. Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania tók við viðurkenningunni ásamt Þóru Rut Jónsdóttur forstöðumanns sjálfbærni og umbóta hjá Advania.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.