Nýjasta nýtt - 10.05.2010

Morgunverðarfundur 12. maí um hagræðingu og sparnað með rafrænum viðskiptum

Skýrr býður atvinnnulífinu til opins morgunverðarfundar um hagræðingu og sparnað með rafrænum viðskiptum.

Skýrr býður atvinnnulífinu til opins morgunverðarfundar um hagræðingu og sparnað með rafrænum viðskiptum.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 12. maí, frá kl. 8:00-10:00.

Rafræn viðskipti og innkaup færast sífellt í aukana í atvinnulífinu, enda gera þau vinnustöðum kleift að spara umtalsverðar fjárhæðir og tíma. Sérstaklega hefur þróunin verið hröð undanfarna mánuði með tilkomu upplýsingatækniþjónustu sem líkja má við dreifingarmiðstöð eða pósthús fyrir rafræn viðskipti. Þessar miðstöðvar sjá um rafræna dreifingu reikninga, pantana, hreyfingalista og annarra skjala milli aðila sem eiga í viðskiptum. Sem dæmi um þróunina má nefna að íslenska ríkið tekur nú á móti rafrænum reikningum og afþakkar pappírsreikninga frá og með 1. maí 2010.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).

Indæll morgunverður verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30 og áætluð fundarlok eru kl. 10:00.

Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.

Skráðu þig með því að senda póst til skyrr@skyrr.is.

 

Dagskrá

Skýrr býður góðan dag!
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr

Orkureikningar og NES/UBL: Kostnaðarauki eða hagræðing?
Rúnar Óskarsson, verkfræðingur hjá Rarik

Rafræn innkaup: Innleiðing innkaupaferla fyrir viðskiptavini
Arnar Bjarnason, markaðsstjóri Fastus

Skeytamiðlun Skýrr: Rafræn dreifing reikninga, pantana og annarra skjala
Styrmir Kristjánsson, ráðgjafi hjá Skýrr

Fundarstjóri
Helgi Lárusson, deildarstjóri hjá viðskiptalausnum Skýrr

Fleiri fréttir

Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.