Nýjasta nýtt - 13.04.2010

Morgunverðarfundur 15. apríl um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta, fimmtudaginn 15. apríl, kl. 8-10. Á fundinum munu sérfræðingar Skýrr og alþjóðlega öryggisfyrirtækisins HID kynna hvernig byggja má upp örugg starfsmannakort með öllum aðgangi á einu korti og sýna hvaða möguleikar opnast við innleiðingu þeirra.

Öryggiskröfur í atvinnulífinu aukast stöðugt, einkum hvað snertir örugga auðkenningu starfsfólks fyrirtækja og stofnana inn í húsnæði, netkerfi og fjölbreytileg upplýsingakerfi.

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um nýja kynslóð öruggra starfsmannakorta, fimmtudaginn 15. apríl, kl. 8-10.

Á fundinum munu sérfræðingar Skýrr og alþjóðlega öryggisfyrirtækisins HID  kynna hvernig byggja má upp örugg starfsmannakort með öllum aðgangi á einu korti og sýna hvaða möguleikar opnast við innleiðingu þeirra.

Fyrirlesarar verða þeir Robert Jansson ráðgjafi hjá HID og Sigurður Másson hópstjóri öryggis- og gagnalausna Skýrr.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).

Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Áætluð fundarlok eru kl. 10:00.

Skráning fer fram með því að senda einfaldan tölvupóst til skyrr@skyrr.is.

Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir. Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.

Dagskrá

 

Aðgengi að húsnæði

Robert Jansson
Ráðgjafi hjá HID

  • Hvernig tryggja má að starfsmannakort séu samhæfð bæði við aðgangskerfi húsnæðis og  aðgangskerfi tölvubúnaðar
  • Hver er munurinn milli mismunandi auðkennismerkja (RFID)
  • Hvað er auðkenniskort (RFID card)
  • Hvað er öryggissnið (security format)
  • Hvaða auðkennismerki (RFID) eru örugg og hver eru  ekki eins örugg
  • Hvaða staðlar og vörumerki eru í heimi auðkennismerkja (RFID)
  • Hvernig getum við forðast "jarðsprengjusvæði" við að sameina aðgang tölvukerfa og húsnæðis á einu korti

 

Öruggt staðarnet

Sigurður Másson
Hópstjóri öryggis- og gagnalausna Skýrr

  • Hvað er örugg prentun starfsmannakorta
  • Hvernig má blanda saman notkun auðkennismerkja (RFID) og rafrænna skilríkja við auðkenningu inn í Windows
  • Hvernig má nota öruggt starfsmannkort til auðkenningar VPN sambanda, örugg þráðlaus net eða vefgáttir svo sem SharePoint
  • Notkun öruggra starfsmanna korta við einkvæma innskráningu (single sign on)
  • Dulritun harðdiska
  • Örugg prentun (secure printing)
  • Sjálfsþjónusta notenda
  • Rafrænar uppáskriftir /staðfestingar á skjölum innan fyrirtækis
  • Hvað ber að athuga í tengslum við snjallkortalesara

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.