Nýjasta nýtt - 25.08.2010

Morgunverðarfundur 27. ágúst: Rafrænir reikningar og Microsoft Dynamics NAV

Rafræn viðskipti og innkaup gera vinnustöðum mögulegt að spara tíma, pappír og peninga. Notkun skeytamiðlunar fyrir dreifingu reikninga, pantana, hreyfingalista og annarra skjala lágmarkar kostnað við umsýslu, ásamt því að stórauka nákvæmni og öryggi.

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um annars vegar um ávinning af innleiðingu á rafrænum reikningum og hins vegar um tengdar lausnir í Microsoft Dynamics NAV sem lúta að þessu sviði.

Fundurinn er miðaður við þarfir stjórnenda, fjármálastjóra og starfsfólks fjármálasviða í atvinnulífinu.

Fundurinn verður haldinn núna á föstudaginn kemur, 27. ágúst, frá kl. 8:00-10:00.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).

Indæll morgunverður verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30 og áætluð fundarlok eru kl. 10:00.

Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.

Skráðu þig með því að senda póst til skyrr@skyrr.is.


Dagskrá

8:00 Húsið opnar - Morgunverður
Ljúffengar veitingar að hætti hússins

8:30 Morgunverðurinn er aldrei (alveg) ókeypis
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr

8:40 Reykjavíkurborg og rafræn viðskipti
Jónas Skúlason, deildarstjóri bókhalds hjá Reykjavíkurborg

9:00 Rafrænir reikningar – Tíminn er núna
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar

9:20 Rafræn viðskipti með Microsoft Dynamics NAV
María Leifsdóttir og Styrmir Kristjánsson, ráðgjafar hjá Skýrr

9:40 Microsoft Dynamics NAV á skrifstofunni
(handhæg tól til að stytta ferla og flýta fyrir úrvinnslu bókhalds)
Gunnar Gestsson, hugbúnaðarþróun, Skýrr

Fundarstjóri
Ólína Laxdal, viðskiptastjóri hjá Skýrr

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.