Morgunverðarfundur 30. apríl um veflausnir, samfélagsmiðla og markaðsetningu á netinu
Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um veflausnir, föstudaginn 30. apríl, frá kl. 8-10
Kynningarstarfsemi, markaðssetning og auglýsingar á netinu verður sífellt mikilvægari þáttur í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Undanfarin misseri hefur átt sér stað mikil þróun í þessum efnum, ekki síst hvað snertir samfélagsmiðla (social media) á borð við Facebook og Twitter. Atvinnulífið er enn að átta sig á byltingunni, læra á miðlana og skilja nytsemi þeirra.
Skýrr vill leggja sitt af mörkum í þessum efnum og bregðast við aukinni eftirspurn fyrir fræðslu.
Fundurinn er miðaður við áhugasvið og þarfir stjórnenda í atvinnulífinu og fólks sem með einum eða öðrum hætti kemur að markaðssetningu fyrirtækja og stofnana.
Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).
Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Áætluð fundarlok eru kl. 10:10.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.
Skráðu þig með því að senda póst til skyrr@skyrr.is
Dagskrá
Skýrr býður góðan dag
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr
Samfélagsmiðlar: Mesta bylting sem orðið hefur í markaðsmálum og menningu fyrirtækja fyrr og síðar
Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta
Virkjun krafta almennings við markaðssetningu
Guðmundur Ragnar Einarsson, ráðgjafi í vefmarkaðssetningu hjá Skapalóni
Social Marketing á tímum náttúruhamfara
Kjartan Sverrisson, eMarketing Manager hjá Icelandair
Auglýsingar á netinu: Hvað einkennir auglýsingaborða sem virka?
Lee Roy Tipton, þróunarstjóri nýmiðlunar hjá Hvíta húsinu
Umhverfi vefjarins: Frá vefstjóra til notenda
Óli Freyr Kristjánsson, ráðgjafi hjá Skýrr
Fundarstjóri
Sigrún Eva Ármannsdóttir, forstöðumaður veflausna Skýrr