Nýjasta nýtt - 05.07.2013

Norðurál innleiðir heildstætt upplýsingakerfi frá Advania fyrir framleiðsluferli sitt

Norðurál Grundartanga hefur tekið í notkun nýtt skráningar- og áætlunarkerfi fyrir framleiðslu fyrirtækisins. Kerfið var þróað af Advania, í samvinnu við starfsmenn Norðuráls.

Norðurál Grundartanga hefur tekið í notkun nýtt skráningar- og áætlunarkerfi fyrir framleiðslu  fyrirtækisins. Kerfið var þróað af Advania, í samvinnu við starfsmenn Norðuráls. Það  heldur utan um framleiðsluferli álversins; frá rafgreiningu, steypu og pökkun til gámahleðslu og útskipunar. Kerfið er í gangi allan sólarhringinn alla daga ársins og stór hluti starfsfólks í framleiðsludeildum Norðuráls notar það við dagleg störf.

„Advania hefur unnið ýmis verkefni af þessu tagi fyrir álver og iðnfyrirtæki gegnum árin. Við höfum frá upphafi lagt mikinn metnað í framsækna notkun upplýsingatækni og gerum miklar kröfur til okkar birgja. Samstarfið hefur gengið framar vonum og við höfum miklar væntingar til nýja kerfisins," segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls.

„Advania hefur öflugt þróunarteymi, sem hefur um langt árabil unnið að gerð viðamikilla kerfa fyrir hitaveitur, verksmiðjur og stór iðnfyrirtæki, sem byggja á umfangsmiklum gagnagrunnum, miklum fjölda notenda og ströngum kröfum um öryggi, uppitíma og hnökralausan rekstur. Nýja kerfið hjá Norðuráli fellur vel að því markmiði okkar að veita viðskiptavinum okkar forskot í samkeppni með útsjónarsamri notkun upplýsingatækni," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

Um Norðurál

Norðurál framleiddi 284.000 tonn af áli á Grundartanga árið 2012 og útflutningsverðmæti þess var um 80 milljarðar króna. Í álverinu sjálfu starfa að jafnaði um 600 manns og um 1.000 manns til viðbótar hafa atvinnu af þjónustu sem tengist starfsemi fyrirtækisins með beinum hætti. Norðurál er stærsti atvinnurekandinn á Vesturlandi og eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins.

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.