Nýjasta nýtt - 2.10.2015 10:10:00

Nýr forstjóri Advania á Íslandi

Ægir Már Þórisson hefur tekið við starfi forstjóra Advania á Íslandi.

Helstu atriði:

  • Ægir Már Þórisson er nýr forstjóri Advania á Íslandi
  • Gestur G. Gestsson mun helga sig starfi forstjóra Advania Norden til að fylgja eftir auknum vexti á Norðurlöndum
  • Markmiðið að efla enn frekar starfsemi á Íslandi og Norðurlöndunum

Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi

Ægir Már Þórisson hefur tekið við starfi forstjóra Advania á Íslandi af Gesti G. Gestssyni sem mun helga sig starfi forstjóra Advania Norden, sem er móðurfélag Advania á Norðurlöndunum.
Með breytingunum er markmiðið að efla starfsemi Advania bæði á Norðurlöndunum og á Íslandi enn frekar. Breytingarnar voru kynntar á fundi með starfsmönnum í morgun.

Gestur G. Gestsson forstjóri Advania Norden

Á undanförnum árum hafa umsvif Advania á Norðurlöndunum aukist verulega, en utan Íslands er fyrirtækið með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Stefna eigenda Advania er að efla starfsemina á Norðurlöndunum enn frekar. Advania veitir opinberum aðilum, fyrirtækjum og einstaklingum víðtæka upplýsingatækniþjónustu og starfa um eitt þúsund manns hjá fyrirtækinu, þar af tæplega sex hundruð á Íslandi.

Ægir Már hóf störf hjá Advania árið 2011 og hefur undanfarin tvö ár verið framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála. Ægir Már er vinnusálfræðingur að mennt og var ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri hjá Capacent áður en hann kom til starfa hjá Advania.

Spennandi tímar framundan

„Það eru spennandi tímar framundan hjá Advania á Íslandi og mikil tækifæri sem blasa við. Með þessari breytingu ætlum við að skerpa áherslur okkar á innanlandsmarkaði. Okkar meginmarkmið mun sem fyrr snúast um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu á sviði upplýsingatækni og hjálpa þeim að nýta upplýsingatæknina á snjallan hátt til að ná enn betri árangri“.
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi

Viljum efla starfssemi Advania á Norðurlöndunum

„Við höfum lagt mikla áherslu á að efla starfsemi Advania á Norðurlöndum á undanförnum árum og hef ég verið í því verkefni samhliða því að stýra starfseminni á Íslandi. Núna teljum við að sé rétti tímapunkturinn að ég einbeiti mér að okkar norrænu starfsemi af fullum krafti. Advania á Íslandi er sá grunnur sem við byggjum á og því skiptir miklu fyrir okkur að fá jafn öflugan mann og Ægi Má til þess að halda um taumana hér heima og efla starfsemina enn frekar.“
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania Norden

Fleiri fréttir

Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.