Nýjasta nýtt - DD.01.YYYY

Nýtt fólk í framkvæmdastjórn Advania

Brynhildur Þorgeirsdóttir, Sigrún Ámundadóttir og Ægir Már Þórisson hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Advania á Íslandi í samræmi við nýtt skipulag félagsins hér á landi.

Brynhildur Þorgeirsdóttir, Sigrún Ámundadóttir og Ægir Már Þórisson hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Advania á Íslandi í samræmi við nýtt skipulag félagsins hér á landi. Hið nýja skipulag Advania miðar að því að efla þjónustu og samskipti við viðskiptavini, ásamt því að auka bæði hagkvæmni og skilvirkni í rekstri fyrirtækisins.

Advania er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki landsins með 26 milljarða króna veltu og 1.100 starfsmenn í fjórum löndum: Íslandi, Noregi, Lettlandi og Svíþjóð. Höfuðstöðvar fyrirtækisins í Reykjavík eru við Guðrúnartún.

Í framkvæmdastjórn Advania sitja nú forstjóri fyrirtækisins, fjórir framkvæmdastjórar tekjusviða og þrír framkvæmdastjórar stoðsviða. Ásamt Brynhildi, Sigrúnu og Ægi sitja í framkvæmdastjórn þeir Gestur G. Gestsson forstjóri, Bjarni Birgisson framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna, Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri rekstrarlausna, Gunnar Ingimundarson framkvæmdastjóri viðskiptalausna og Jóhann Þór Jónsson framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs.

  Brynhildur Þorgeirsdóttir er nýráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptastýringar Advania. Brynhildur kom til starfa hjá Advania frá Vodafone í upphafi árs 2013. Viðskiptastýring er nýtt stoðsvið innan fyrirtækisins, sem hefur umsjón með viðskiptastýringu, samhæfingu á sölu og samskiptum við lykilviðskiptavini.
  Sigrún Ámundadóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra stjórnsýslulausna Advania, sem er nýtt tekjusvið innan fyrirtækisins. Sigrún hefur starfað hjá Advania og forverum þess frá árinu 1991 sem verkefnisstjóri, hópstjóri og forstöðumaður. Undir stjórnsýslulausnir heyra til að mynda Oracle-lausnir, rafræn viðskipti, mannauðslausnir og hugbúnaðarþróun fyrir opinbera aðila.
  Ægir Már Þórisson hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn Advania sem framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Advania, sem er nýtt stoðsvið. Hann kom til starfa hjá Advania frá Capacent fyrir tveimur árum. Í verkahring mannauðs- og markaðssviðs eru meðal annars mannauðsmál, launavinnsla, mötuneyti, markaðsmál, vefsvæði fyrirtækisins, viðburðir, almannatengsl og innri og ytri samskipti.

Fleiri fréttir

Blogg
12.05.2026
Advania og Jabra frumsýna saman í dag PanaCast U30, glænýjan AllInOne búnað sem færir fyrsta flokks fundaupplifun inn í minnstu fundarherbergin. Þetta er nákvæmlega sá búnaður sem íslensk fyrirtæki hafa verið að bíða eftir og verðið kemur skemmtilega á óvart.
Blogg
07.05.2026
Þessa dagana snýst umræða um gervigreind mikið um það hvaða störf eru að verða úrelt og hvar fyrirtæki geti mögulega skorið niður og sparað stöðugildi. Þó það sé sannarlega eitthvað sem er mikilvægt að vera með augun á, þá segir það bara hálfa söguna.
Fréttir
06.05.2026
Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.