Nýjasta nýtt - 26.06.2014

Öflugir kjölfestufjárfestar kaupa meirihluta í Advania

Stjórn Advania hefur boðað til hluthafafundar þar sem tekin verður fyrir tillaga stjórnar að auka hlutafé félagsins um 2.000 milljónir króna að markaðsvirði.


Stjórn Advania hefur boðað til hluthafafundar

Stjórn Advania hefur boðað til hluthafafundar þar sem tekin verður fyrir tillaga stjórnar að auka hlutafé félagsins um 2.000 milljónir króna  að markaðsvirði. Hlutafjáraukningin verður nýtt til þess að greiða niður skuldir félagsins við lánastofnanir og þar með auka eiginfjárhlutfall þess úr tæpum 10% í 22,5%. Framtakssjóður Íslands, sem er eigandi 71,26 prósenta hlutar í félaginu, hefur ákveðið að framselja forkaupsrétt sinn að nýju hlutafé til sænska félagsins AdvInvest AB. Auk þess hefur FSÍ skuldbundið sig til að selja AdvInvest hluta af núverandi eign sinni til að tryggja þeim 51% eignarhlut í félaginu. AdvInvest býður öðrum hluthöfum félagsins að ganga inn í viðskiptin á sömu kjörum og FSÍ. Hversu mikið FSÍ selur mun ráðast af því hvort eða hversu mikið aðrir hluthafa falla frá kaupum í hlutafjáraukningunni.  

Í eigu reynslumikilla sænskra fjárfesta

AdvInvest er í eigu sænskra fjárfesta sem hafa langa og farsæla reynslu í upplýsingatækni og er leitt af Thomas Ivarson sem hefur áratugareynslu af rekstri tæknifyrirtækja í Norður Evrópu. Markmið fjárfestanna er að efla félagið enn frekar, nýta sterkan þekkingargrunn félagsins á Íslandi og nýta tengsl og þekkingu fjárfestanna til frekari vaxtar á Norðurlöndunum.                                  


Skráning í Kauphöll Íslands og Svíþjóð markmiðið

Um nokkurt skeið hefur legið fyrir að auka þyrfti hlutafé Advania og hækka eigið fé félagsins. Nýtt hlutafé mun styrkja rekstur félagsins til langframa og veita því styrk til að sækja fram erlendis, einkum á Norðurlöndum. Erlend sókn félagsins byggir m.a. á þekkingu og reynslu innlends starfsfólks félagsins. Með innkomu fjárfesta með langa reynslu af rekstri upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum styrkir Advania enn frekar möguleika sína til verða eitt af leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni á Norðurlöndunum. Sameiginlegt markmið stærstu eigenda félagsins er að skrá félagið á markað bæði í Kauphöll Íslands og í Svíþjóð.

Beringer Finance í Stokkhólmi og Reykjavík var ráðgjafi kaupendanna í viðskiptunum.

Fleiri fréttir

Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.