Nýjasta nýtt - 29.04.2013

Opera stóreykur viðskiptin við gagnaver Advania

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software hefur undirritað nýjan samning við Advania vegna umsvifa fyrirtækisins í gagnaveri Advania í Hafnarfirði.

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software hefur undirritað nýjan samning við Advania vegna umsvifa fyrirtækisins í gagnaveri Advania í Hafnarfirði

Opera stóreykur viðskiptin við gagnaver Advania.

  • Stóraukin Internetumferð um Ísland 
  • Orkuþörfin á við 2-3 þúsund manna íslenskt bæjarfélag
Samningurinn felur í sér liðlega 60% aukningu á umsvifum Opera Software í Advania Thor gagnaverinu, sem þjónar meðal annars 300 milljónum notenda Opera Mini-vafrans í tölvum, snjallsímum, sjónvörpum og öðrum nettengdum tækjum. Í gagnamagni er internetumferð viðskiptavina Opera Software  í Advania Thor gagnaverinu áþekk allri annarri internetumferð á Íslandi. Með þessum nýja samningi eykst þessi umferð til mikilla muna. Opera Software var stofnað árið 1994 og var fyrirtækið einn af fyrstu viðskiptavinum Advania Thor gagnaversins þegar það var tekið í notkun árið 2010. 

Íslensk gagnaver í örum vexti

"Íslensk gagnaver eru atvinnugrein í örum vexti. Greinin leggur áherslu á  að markaðssetja Ísland sem umhverfisvænan valkost sem hefur þá sérstöðu að byggja á endurnýjanlegri orku. Gagnaverin geta skapað þjóðinni miklar gjaldeyristekjur, eins og samningurinn við Opera Software er gott dæmi um. Í dag eru um 60% af tekjum Advania samsteypunnar og um 80% af veltu Advania Thor gagnaversins vegna erlendra verkefna," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

Gagnkvæmur ávinningur

„Við erum hæstánægð með aukna samvinnu við Advanía en fyrirtækin hafa haft gagnkvæman ávinning af samstarfinu til þessa. Samstarfið við Advania Thor gagnaverið á Íslandi gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar aukna þjónustu á umhverfisvænan hátt. Árið 2010 ákváðum við að nýta okkur starfsemi gagnaversins á Íslandi og sú aukning sem við höfum nú samið um er staðfesting á ánægju okkar með þessi viðskipti,“ segir Anthony Nichols framkvæmdastjóri tæknisviðs Opera Software. 

Raunhæfur kostur fyrir erlenda viðskiptavini

Advania er norrænt 1.100 manna upplýsingatæknifyrirtæki með 20 skrifstofur í 3 löndum: á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík. Viðskiptavinir Advania eru um 10 þúsund talsins um víða veröld. Gagnaflutnings- og orkuleiðir til og frá Advania Thor gagnaverinu  í Hafnarfirði eru mjög góðar og því er það mjög álitlegur kostur fyrir alþjóðleg fyrirtæki á borð við Opera Software, sem eru að leita að umhverfisvænu gagnaveri með hagkvæma og áreiðanlega þjónustu.

2.100 netmiðlarar og orka til 700 heimila

Advania hýsir í dag um 1300 netmiðlara fyrir Opera Software og nýi samningurinn felur meðal annars sér hýsingu á tæplega 800 miðlurum til viðbótar. Orkuþörfin vegna  umsvifa Opera Software í Advania Thor gagnaverinu svipar til þeirrar orku sem þarf fyrir 700 íslensk heimili eða 2-3 þúsund manna bæjarfélag. Starfsemi gagnaversins hefur aukist mjög að umfangi síðast liðna 18 mánuði. Fjöldi viðskiptavina hefur þrefaldast og húsnæði versins hefur verið tvöfaldað úr 3 þúsund fermetrum í 6 þúsund. Lögð hafa verið drög að enn frekari stækkun gagnaversins á næstu misserum ef  reksturinn heldur áfram að aukast. 

 

Fleiri fréttir

Blogg
17.11.2025
Í gegnum árin hefur samstarf Advania og Yealink byggst á trausti, nýsköpun og sameiginlegri sýn um að veita viðskiptavinum bestu mögulegu lausnir í fundar- og samskiptatækni. Langur listi ánægðra viðskiptavina er vitnisburður um gæði lausnanna og þjónustunnar sem fylgir.
Blogg
13.11.2025
Dell hefur kynnt nýjar fartölvulínur sem eru hannaðar til að mæta ólíkum þörfum á vinnustöðum. Til að einfalda valið eru þrír meginflokkar: Dell Pro, Dell Pro Premium og Dell Pro Max. Hver lína er sérsniðin að mismunandi hlutverkum innan fyrirtækja, og hjálpar starfsfólkinu að vera Pro í sinni vinnu.
Fréttir
12.11.2025
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins á Íslandi árið 2025 (e. Partner of the Year). Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.