Nýjasta nýtt - 17.5.2018 16:37:00

Undirritanir á arfgerd.is gerðar með Signet

Eins og mörgum er kunnugt um hefur Íslensk erfðagreining nýlega opnað vefgáttina arfgerd.is þar sem fólk getur óskað eftir því að fá að vita hvort það sé arfberi stökkbreytingar í erfðavísinum BRCA2. Konur sem eru arberar stökkbreytingarinnar eru í aukinni hættu á að fá krabbamein.

Eins og mörgum er kunnugt um hefur Íslensk erfðagreining nýlega opnað vefgáttina arfgerd.is þar sem fólk getur óskað eftir því að fá að vita hvort það sé arfberi stökkbreytingar í erfðavísinum BRCA2. Konur sem eru arberar stökkbreytingarinnar eru í aukinni hættu á að fá krabbamein.

Til að komast að því hvort þú sért í þessum áhættuhópi getur þú skráð þig á arfgerd.is og undirritað samning með rafrænu undirritunarlausninni Signet. Á tveimur sólarhringum höfðu rúmlega 20 þúsund manns undirritað samninginn.

Signet-lausnin er afar örugg og hönnuð af öryggissérfræðingum Advania. Aðgangur að Signet er varinn með rafrænum skilríkjum. Öll samskipti eru dulkóðuð sem og allar upplýsingar sem settar eru inn í Signet. Þannig eru öll skjöl sem send eru inn í Signet á dulkóðuðu formi. Notendur Signet geta treyst því að enginn nema undirritendur geti séð skjölin.

Helsti ávinningurinn af því að nota Signet er sá að hægt er að undirrita skjöl hvar og hvenær sem er, svo lengi sem notandinn hefur aðgang að neti og er með rafræn skilríki í símanum sínum eða á snjallkorti.

Signet er vettvangur í Skýinu sem einstaklingar og fyrirtæki geta nýtt sér til að undirrita allar tegundir af skjölum. Sem dæmi má nefna lán, samninga, fundargerðir, eignaskiptayfirlýsingar eða viðkvæm gögn sem þarfnast undirritunar.

Fleiri fréttir

Blogg
30.04.2026
Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.
Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.