Nýjasta nýtt - 6.5.2019 14:49:00

Rafrænar kosningar framtíðin

Lýðræðislegar kosningar eru hornsteinn vestræns stjórnarfars og grundvöllur allra stærstu ákvarðana sem teknar eru. Framkvæmd þeirra hefur hins vegar verið svo til óbreytt frá upphafi. Sigurður Másson ræddi um rafrænar kosningar við Viðskiptablaðið á dögunum.

Lýðræðislegar kosningar eru hornsteinn vestræns stjórnarfars og grundvöllur allra stærstu ákvarðana sem teknar eru. Framkvæmd þeirra hefur hins vegar verið svo til óbreytt frá upphafi.

Hér birtist brot úr viðtali Viðskiptablaðsins við Sigurð Másson um rafrænar kosningar. 

Kjósandi fær afhendan pappírsseðil og merkir hann þannig að vilji hans sé skýr. Seðlunum er svo safnað saman og þeir flokkaðir og taldir, og niðurstöðurnar í framhaldinu opinberaðar. Á þessu er hins vegar að verða stórfelld breyting. Tækniþróun síðustu áratuga lætur fáa kima samfélagsins ósnerta og kosningar eru þar engin undantekning. Fyrstu rafrænu almennu kosningar sem haldnar voru í gegnum netið voru sveitarstjórnarkosningar í Eistlandi árið 2005, og tveimur árum síðar héldu Eistar fyrstu slíku þingkosningar í heimi.

Fá þjóðríki hafa þó tekið upp slíkt kerfi fyrir almennar kosningar, og hér á landi er enn notast við pappírsaðferðina. Rafræna aðferðin hefur hins vegar verið að ryðja sér til rúms í ýmsum smærri kosningum. Til að mynda hafa borgarbúar getað kosið rafrænt um ýmis verkefni í sínu nærumhverfi síðustu ár.

Umfangsmesta innleiðing tækninnar hefur þó átt sér stað hjá verkalýðsfélögunum, en hugbúnaðarfyrirtækið Advania hefur þróað slíkt kerfi í samstarfi við ASÍ.

Sigurður Másson, deildarstjóri hjá Advania, segir kosti rafrænna kosninga ótvíræða. Ekki aðeins séu þær öruggari en hin hefðbundna pappírsframkvæmd, heldur spari þær eðli máls samkvæmt gríðarlega fyrirhöfn, tíma og kostnað. „Það er þægilegra, einfaldara og ódýrara að gera þetta allt rafrænt.“

Verkalýðsfélögin hafa að eigin sögn sparað tugi milljóna með hinu nýja kerfi, en fjölmennustu kosningar sem kerfið hefur séð um snerust um Salek-samkomulagið og töldu um 80 þúsund manns á kjörskrá. Til samanburðar hleypur kostnaður hins opinbera við allsherjarkosningar á borð við þing- og sveitarstjórnar á hundruðum milljóna króna.

Sigurður segir kerfið hafa gefist vel. Þótt rafræn framkvæmd geti ýtt undir þátttöku í kosningum með því að einfalda hana, velti hún þó eftir sem áður öðru fremur á áhuga kjósenda. „Þó þú breytir hlutum yfir í rafrænt þá fær fólk ekki skyndilega áhuga. Fólk sem hefði ekki kosið kýs ekkert frekar þannig. Fyrir þá sem hins vegar hafa áhuga er auðveldara að kjósa,“ en kjörsókn hefur verið gríðarlega mismikil. „Við höfum verið með kosningar með 90% þátttöku og við höfum verið með kosningar með 5% þátttöku.“

Fleiri fréttir

Fréttir
01.11.2025
Það var gleðistund þegar Advania afhenti Vísindagörðum fyrstu NVIDIA DGX Spark ofurtölvuna. Mikil eftirvænting hefur ríkt hér á landi enda er um að ræða nýjustu og minnstu ofurtölvu tæknirisans NVIDIA, sannkallaða byltingu í gervigreindarvinnslu.
Fréttir
30.10.2025
Advania hélt vikulega viðburði í Öryggisoktóber í ár. Við þökkum öllum sem tóku þátt í þessum viðburðum með okkur. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá að margir eru með augun á netöryggismálum í Öryggisoktóber og láta sig þessi mál varða. Það var þétt setið á viðburðunum og hundruð fylgdust með útsendingum og fræddust um þennan mikilvæga málaflokk.
Blogg
30.10.2025
Það hefur ríkt mikil eftirvænting á meðal fyrirtækja á Íslandi eftir NVIDIA DGX Spark. Nýjustu og minnstu ofurtölvu NVIDIA sem nú er komin í sölu hjá Advania. Vélin, sem býður upp á petaflopp af afköstum í borðtölvuformi, hefur verið kölluð bylting í gervigreindarvinnslu og vakið gríðarlega athygli á heimsvísu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.