Nýjasta nýtt - 23.4.2018 12:20:00

Sjálfsafgreiðsla vinsæl í Krónunni

Í rúman mánuð hafa viðskiptavinir Krónunnar í Nóatúni haft val um að afgreiða sig sjálfir við nýja afgreiðslulausn eða greiða fyrir vörur á hefðbundinn hátt við mannaða afgreiðslukassa. Sjálfsafgreiðslan hefur gengið svo vel að á næstu vikum verða fleiri slíkir kassar teknir í notkun í nýjum verslunum Krónunnar á Hvolfsvelli og í Garðabæ.

Í rúman mánuð hafa viðskiptavinir Krónunnar í Nóatúni haft val um að afgreiða sig sjálfir við nýja afgreiðslulausn eða greiða fyrir vörur á hefðbundinn hátt við mannaða afgreiðslukassa. Sjálfsafgreiðslan hefur gengið svo vel að á næstu vikum verða fleiri slíkir kassar teknir í notkun í nýjum verslunum Krónunnar á Hvolfsvelli og í Garðabæ.

„Strax á fyrsta degi sáum við hátt hlutfall viðskiptavina velja sjálfsafgreiðslu. Nýju kassarnir virka vel og notkun þeirra hefur gengið vonum framar,“ segir Karen Rúnarsdóttir markaðsstjóri Krónunnar.

Tilgangurinn með sjálfsafgreiðslulausnum er að draga úr álagi í verslunum og stytta biðraðir. Afgreiðslukerfið er einfalt og allir sem greiða með greiðslukorti geta notað það. „Við finnum hvernig sjálfsafgreiðsluviðbótin losar hraðar um raðir á annasömum dögum. Í verslun okkar í Nóatúni fórum við úr því að vera með fjóra afgreiðslukassa yfir í sjö. Það segir sig sjálft að þá minnka raðirnar. Sumir viðskiptavinir kjósa hinsvegar að versla á hefðbundnum kassa og það er líka í góðu lagi. Við viljum að viðskiptavinir okkar hafi val. Okkur finnst gaman að sjá hvað fólk er tilbúið að prófa og við erum alltaf með starfsmann á sjálfsafgreiðslusvæðinu til þess að aðstoða og leiðbeina,“ segir Karen.

Advania þjónustar afgreiðslukerfið í Krónunni en kassarnir eru framleiddir af NCR sem er leiðandi á heimsmarkaði í afgreiðslulausnum. Kerfið er því þaulprófað um allan heim og er einstaklega notendavænt.
„Við fögnum því að tæknin sé farin að auðvelda okkur innkaupin og draga úr röðum við afgreiðslukassa. Reynsla Krónunnar er í takt við þróunina í Evrópu þar sem neytendur velja sjálfsafgreiðslulausnir í matvöruverslunum í auknum mæli,“ segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania.

Að sögn Karenar er unnið að því að setja upp sjálfsafgreiðslukassa í fleiri verslunum Krónunnar. „Við bíðum bara spennt eftir næstu pöntun til þess að geta haldið þessari vegferð áfram,“ segir Karen.

Fleiri fréttir

Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Fréttir
27.05.2026
Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.