Nýjasta nýtt - 07.01.2012

Skúli Mogensen í hluthafahóp Advania

Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Skýrr með liðlega 5% hlut. Samhliða þessu er fyrirhugað að Skúli setjist í stjórn Skýrr á næsta aðalfundi félagsins.

Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Skýrr með liðlega 5% hlut. Samhliða þessu er fyrirhugað að Skúli setjist í stjórn Skýrr á næsta aðalfundi félagsins.

„Markmið Títan er að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins á Íslandi með fjárfestingum í þekkingar- og nýsköpunarfélögum með mikla vaxtarmöguleika. Fjárfestingin í Skýrr smellpassar við þá stefnu okkar. Skýrr stendur vissulega á gömlum grunni, en hefur tekið grundvallarbreytingum og vaxið hratt undanfarin tvö ár gegnum sameiningar á átta góðum fyrirtækjum bæði hér heima og erlendis. Fyrirtækið er í dag með víðtæka starfsemi í fjórum löndum og er afar áhugaverður fjárfestingakostur. Það verður einnig spennandi verkefni að sitja þarna í stjórn,“ segir Skúli Mogensen, eigandi Títan. Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Skýrr með liðlega 5% hlut. Samhliða þessu er fyrirhugað að Skúli setjist í stjórn Skýrr á næsta aðalfundi félagsins

"Skúli hefur á undanförnum misserum sannað sig sem þungavigtarmaður í íslensku viðskiptalífi. Hann hefur tekið þátt í að stofna og fjárfesta í fjölda fyrirtækja, bæði hér á landi og erlendis. Jafnframt hefur Skúli yfirgripsmikla reynslu af þekkingariðnaði, sem spannar yfir tvo áratugi. Það er því mikill styrkur í aðkomu hans að Skýrr," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr.

Á meðal annarra fyrirtækja sem Títan hefur fjárfest í eru MP banki, WOW air, Carbon Recycling International, Securitas, CAOZ, Tindar Verðbréf, Thor Data Center og DataMarket.

Aðaleigandi Skýrr með liðlega 75% hlut er Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans og VÍS, en einnig eru liðlega 40 aðrir hluthafar í félaginu. Skýrr er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Íslands og hefur um 1.100 starfsmenn; þar af um 600 hér á landi og um 500 í Noregi, Svíþjóð og Lettlandi. Skýrr velti rúmlega 24 milljörðum árið 2011 og er níunda stærsta upplýsingatæknifyrirtæki Norðurlanda.

 

Fleiri fréttir

Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.