Nýjasta nýtt - 06.07.2011

Haustráðstefna Skýrr 2011, föstudaginn 9. september

Haustráðstefna Skýrr á Hilton, tæplega 70 fyrirlestrar í boði á sex mismunandi fyrirlestralínum

Föstudaginn 9. september 2011 verður hin árlega Haustráðstefna Skýrr haldin á Hilton-hótelinu í Reykjavík. Haustráðstefnan verður sem fyrrr langstærsti viðburður haustsins í upplýsingatækni, enda tæplega 70 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum.

Um 20 erlendir fyrirlesarar munu troða upp á ráðstefnunni og um 50 íslenskir. Þetta er sautjánda árið í röð, sem ráðstefnan er haldin og í ár er gert ráð fyrir metaðsókn, enda sjaldan fyrr verið jafn mikil eftirspurn fyrir gagnlegri fræðslu og þekkingarmiðlun um lausnir upplýsingatækni fyrir atvinnulífið. Gert er ráð fyrir 800-900 ráðstefnugestum.

  • Lykilræðu flytur Jeff Wieland, sem hefur starfað við samfélagsmiðlun hjá stórveldinu Facebook frá árinu 2006 – eða hartnær frá stofnun – og vinnur við hönnunarhlið verkefna þar. Þess má geta að Jeff á íslenska móður, þannig að tengsl hans við Ísland eru mikil, þrátt fyrir að hann hafi búið vestan hafs alla ævi.
  • Aðra lykilræðu flytur Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, sem fjallar um samstarfsverkefni CCP og Sony hvað snertir tölvuleikinn DUST 514  fyrir leikjatölvuna PlayStation 3, en leikurinn mun á einstæðan hátt tengja tvö risavaxin netfélög EVE Online fyrir PC-tölvur og PlayStation Network fyrir PS3.

Fyrirlestralínurnar sex eru eftirfarandi

  • Stjórnendalína (upplýst ákvörðunartaka og arðsemi fjárfestinga) 
  • Bland-í-poka
  • Rafræn stjórnsýsla 
  • Rekstur & Öryggi 
  • Samskiptalausnir 
  • Verslun og viðskipti

Verð

Verð á ráðstefnuna er 29.300 kr. Innifalið í því verði er frjáls aðgangur að öllum fyrirlestrum, veitingar yfir daginn, hádegisverður og glæsileg kvöldskemmtun.

Afsláttarkjör

Viðskiptavinir Skýrr og gestir á morgunverðarfundum fyrirtækisins undanfarin misseri fá 15% afslátt frá listaverði. 

  • Vinnustaðahópar sem telja fjóra eða fleiri einstaklinga hljóta sjálfkrafa 20% afslátt. 
  • Stærri hópar eru hvattir til að hafa samband við skyrr@skyrr.is og leita sértilboða. 
  • Jafnframt býðst háskólanemendum 25% afsláttur gegn framvísun nemendaskírteina við skráningu. 
  • Atvinnulausir fá sömuleiðis 25% afslátt og láta vita af aðstæðum sínum við skráningarborð.

Á Haustráðstefnu Skýrr 2011 eiga allir að geta fundið sér fyrirlestra við hæfi, bæði til gagns og gamans. Gildir þar einu hvort um er að ræða stjórnendur, tæknifólk eða almennt starfsfólk sem sýslar með tól og tæki upplýsingatækninnar hversdags.

Dagskrá mun standa yfir frá klukkan 8:00 til 17:00 og dagurinn verður kláraður með hressandi lokapartý og skemmtidagskrá sem stendur fram á mitt kvöld.

 

 

Fleiri fréttir

Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.