TOK - 19.6.2017 09:38:00

TOK 2016 útgáfan - Hækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði 1. júlí 2017

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samkomulag um hækkun á framlagi atvinnurekanda í lífeyrissjóði. Hækkar mótframlag atvinnurekanda um 1,5% stig þann 1. júlí 2017.

Sjá nánar hér: http://www.sa.is/frettatengt/frettir/motframlag-i-lifeyrissjodi-haekkar-um-3-5-til-2018

Þetta samkomulag nær ekki yfir alla lífeyrissjóði eins og t.d. LSR og Lífeyrisjóð bankamanna.

Það er mikilvægt að gera viðkomandi breytingar á réttum tíma, þá má alls ekki keyra inn þessa breytingu ef það er ekki búið að bóka júní launin. Hins vegar er mikilvægt að lesa inn þessa breytingu áður en júlí útborgun er stofnuð.

Hér koma fram leiðbeiningar:

Farið er í Deildir - Laun – Uppsetning – Kröfukótar

Í Kröfukótunum er farið í LÍFMÓT og í Álag (þar sem stendur 8,5%)

8.5% er hækkað í 10% og örvatakkinn upp eða niður er notaður til þess að fara út úr línunni.– þá birtast skilaboð „Lífeyrissjóður sem notar sama kröfukóta og var ekki uppfærður er sýndur“ hér er í lagi að smella „Í lagi“

Allir aðrir sjóðir hafa þá uppfærst með mótframlag 10%

Með því að smella „Í lagi“ þá kemur upp listi yfir þá sjóði þar sem mótframlagið uppfærðist ekki. Það getur litið út eins og þessi listi hér fyrir neðan, ýmist með færri eða fleiri sjóðum. Ástæðan fyrir því að sjóður hefur ekki uppfærst er t.d. ef línan á lífeyrissjóðsspjaldi viðkomandi sjóðs er ekki alveg eins og línan fyrir LÍFMÓT í kröfukótunum. Eins og td. þegar búið er að taka/breyta annað hvort lágmarksaldri 16 eða hámarksaldri 69, nú eða að mótframlagið var ekki 8,5% fyrir breytinguna.

Fara þarf yfir þennan lista og athuga hvort að einhverjir af þessum sjóðum eru virkir og meta hvort það eigi að hækka mótframlagið einnig.

Með því að smella á Nr. (t.d. L180) og fara í „Breyta“ þá kemur upp spjald viðkomandi lífeyrissjóðs.

Í línunum er þá hægt að sjá af hverju viðkomandi sjóður uppfærðist ekki.

Í þessu tilviki er mótframlagið 16 (16%) og því er línan á LÍFMÓT á spjaldinu ekki eins og línan fyrir LÍFMÓT í Kröfukótum

Það þarf að fara yfir alla þá sjóði sem uppfærðust ekki á sama hátt og sjóður L180.

Einnig er hægt að óska eftir aðstoð með því að hafa samband við TOK þjónustuborðið með því að senda tölvupóst á tok@advania.is eða með því að hringja í 440-9000.

TOK laun 2015 og eldra - Hækkun á mótframlagi atvinnurekanda í lífeyrissjóði 1. Júlí 2017

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samkomulag um hækkun á framlagi atvinnurekanda í lífeyrissjóði. Hækkar mótframlag atvinnurekanda um 1,5% stig þann 1. júlí 2017.

Þetta samkomulag nær ekki yfir alla lífeyrissjóði eins og t.d. LSR og Lífeyrisjóð bankamanna.

Hér koma leiðbeiningar:

  • Velja flipann „Launakerfi“
  • Undir aðgerðinni „Greiðslutegundir“ Smella á „Lífeyrissjóðir“
  • Velja lífeyrissjóði sem á að breyta
  • Smella á flipann „Lífeyrissjóðir“
  • Breyta prósentu upphæð
  • Uppfæra

Einnig er hægt að óska eftir aðstoð með því að hafa samband við TOK þjónustuborðið með því að senda tölvupóst á tok@advania.is eða með því að hringja í 440-9000.

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.