Nýjasta nýtt - 24.09.2012

Thomas Cook semur við Advania

Alþjóðlega ferðaþjónustufyrirtækið Thomas Cook hefur samið við Advania um innleiðingu á samskiptahugbúnaði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins á Norðurlöndum.

Alþjóðlega ferðaþjónustufyrirtækið Thomas Cook hefur samið við Advania um innleiðingu á samskiptahugbúnaði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins á Norðurlöndum. 

Verkefnið nær til 200 umboðsaðila Thomas Cook Scandinavia, sem er hluti af Thomas Cook Group, sem hefur hátt í 40 þúsund starfsmenn á heimsvísu og veltir um 1.800 milljörðum króna. Verkefnið verður unnið af Advania í Svíþjóð þar sem starfa um 300 manns. Búnaðurinn byggir á tækni frá Interactive Intelligence, samstarfsaðila Advania, sem nefnist Customer Interaction Center (CIC).

Ráðgjöf frá Gartner

„Thomas Cook leitaði til alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins Gartner Group til að finna hentuga heildarlausn. Gartner mælti eindregið með CIC-samskiptavöndlinum frá Interactive Intelligence, sem bestu lausninni fyrir fyrirtæki af okkar tagi. CIC byggir á opnum stöðlum og getur meðal annars tengst vefumsjónarkerfi okkar, sem tryggir viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu til langtíma,“ segir Tommy Jakobsson, upplýsingatæknistjóri hjá Thomas Cook Scandinavia.

Verkefnið verður unnið af Advania í Svíþjóð

„Þetta er þýðingarmikill samningur og mikill að vöxtum. Samningurinn er jafnframt ákveðinn gæðastimpil á CIC-lausnina og starfsemi Advania í Svíþjóð. Það er ánægjuefni að Gartner hafi mælt með CIC og að Advania hafi síðan orðið fyrir valinu. Við áætlum að lausnin verði í heild sinni komin í fulla virkni núna fyrir áramótin,“ segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania.

Betri þjónusta

„Nýja samskiptalausnin færir alla samskiptamiðla – vefspjall, tölvupóst, síma og svo framvegis – í eitt miðlægt kerfi með samhæfðu og einsleitu viðmóti. Þar með geta ferðaráðgjafar okkar og sölufólk veitt viðskiptavinum enn betri, hraðari og skilvirkari þjónustu. Þetta gildir hvort heldur fólkið okkar er að svara fyrirspurnum um flug og gistingu eða jafnvel dægrastyttingu og aðra valkosti,“ bætir Jakobsson við.


Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.